Veiting akademískra starfa

Reglur um veitingu akademískra starfa við LHÍ

1. Auglýsing embætta.

1.1. Allar fastar kennara- og stjórnunarstöður við skólann skulu auglýstar. Auglýsingin skal vera ítarleg og skýr og taka mið af kröfum þess starfs sem við á í hvert skipti.

Liðir 2 - 6 í reglum þessum eiga við um fastráðningu kennara og deildarforseta við Listaháskóla Íslands.

2. Umsóknir og meðferð þeirra.

2.1. Umsóknum skal fylgja greinargóð skýrsla um listræn störf umsækjenda og/eða rannsóknir og ritsmíðar, afrit af verkum eftir því sem við á, upplýsingar um önnur störf og aðrar þær upplýsingar er tengjast listsköpun hans og starfi. Ennfremur skal fylgja yfirlit um námsferil og afrit af prófskírteinum ásamt greinargerð um hugmyndir umsækjanda um auglýsta stöðu ef óskað er. Æskilegt er að umsagnir um fyrri störf umsækjenda berist með umsóknum. Að öðru leyti er vísað til auglýsingar um stöðuna sbr. gr. 1.1.

3. Skipan dómnefnda og starfshættir þeirra.

3.1. Þriggja manna dómnefnd skal dæma um hæfi umsækjenda. Stjórn Listaháskólans tilnefnir í dómnefnd. Óski rektor eftir því að dómnefnd forgangsraði hæfum umsækjendum skal sú ósk liggja fyrir áður en dómnefnd hefur störf. Rektor staðfestir skipun dómnefndar með bréfi til hlutaðeigandi nefndarmanna og skipar formann.

3.2. Í dómnefndir má skipa þá eina sem lokið hafa háskólaprófi í viðkomandi listgrein eða njóta viðurkenningar vegna þekkingar sinnar og kunnáttu á því sviði. Dómnefndir skulu að jafnaði skipaðar sérfræðingum sem starfa utan Listaháskólans.

3.3. Formaður dómnefndar tekur við umsóknum og meðfylgjandi gögnum frá skrifstofu skólans og kallar dómnefnd til starfa. Dómnefnd er heimilt að kalla eftir viðbótargögnum og skulu þá umsækjendur njóta jafnræðis.

4. Um mat á hæfi umsækjenda.

4.1. Að teknu tilliti til menntunar eða jafngildrar reynslu sbr. lög um háskóla nr. 136/1997, 7. gr. skal mat byggt á eftirfarandi þáttum: listrænum ferli og/eða rannsóknum og fræðistörfum, kennslustörfum, stjórnunarreynslu, og reynslu af öðrum þáttum, sem telja má að tengist starfinu sérstaklega.

4.2. Við mat á listrænum störfum skal leggja til grundvallar eftirfarandi þætti: listrænt gildi og frumleika og að viðurkenndar innlendar sem erlendar listastofnanir, sem leggja faglegt mat til grundvallar vali sínu, hafi notið starfskrafta umsækjanda eða tekið verk hans til sýningar, flutnings eða útgáfu. Heimilt er að taka tillit til verka í vinnslu.

4.3. Við mat á rannsóknum og fræðistörfum ber að athuga frumleika rannsóknarverkefnis og sjálfstæði gagnvart öðrum rannsóknum og ritverkum, þekkingu á stöðu rannsókna á viðkomandi fræðasviði, meðferð heimilda og vísindaleg vinnubrögð, fræðilegar nýjungar og notagildi rannsóknanna.

4.4. Við mat á fyrri kennslustörfum ber að athuga hversu mikla rækt umsækjandi hefur lagt við kennslustörf sín og hvaða árangri hann hefur náð á því sviði. Jafnframt skal meta fjölbreytni og nýjungar í kennsluaðferðum, frumkvæði í uppbyggingu náms og viðleitni til að hvetja nemendur til sjálfstæðra vinnubragða.

4.5. Við mat á stjórnunarreynslu skal litið til reynslu af háskólastörfum og annarar þekkingar sem talið er að nýtist innan Listaháskólans, s.s.félagsstarfa, stjórnunar fyrirtækja, og starfa í þágu menningar og lista.

4.6. Dómnefnd er heimilt að fara fram á að fá sérstök viðbótargögn og/eða viðtöl, flutning listrænna atriða eða nánari skoðun verka umsækjenda. Dómnefnd getur leitað umsagna frá sérfræðingum um tiltekin verk eða störf umsækjenda almennt.

4.7. Stjórn Listaháskóla Íslands getur sett nánari reglur um störf einstakra dómnefnda ef þurfa þykir.

5. Um dómnefndarálit.

5.1. Í upphafi dómnefndarálits skal dómnefnd gera grein fyrir þeim forsendum, gögnum og heimildum, sem hún byggir mat sitt á.

5.2. Dómnefnd skal láta í ljós rökstutt álit á því hvort umsækjendur séu hæfir til að gegna starfinu sem um ræðir eða ekki. Þetta álit skal vera afdráttarlaust. Sé ágreiningur um þetta í dómnefnd skulu greidd atkvæði um hvern umsækjanda og ber hverjum dómnefndarmanni þá að taka afstöðu. Hverjum dómnefndarmanni er heimilt að gera grein fyrir mati sínu með séráliti.

6. Um meðferð dómnefndarálits og afgreiðslu máls.

6.1. Dómnefndarálit undirritað af öllum dómnefndarmönnum, ásamt umsóknargögnum, á að berast rektor. Telji rektor álitið gallað eða störfum dómnefndar ábótavant er honum heimilt að senda álitið aftur til dómnefndar með athugasemdum. Dómnefnd er skylt að svara athugasemdum.

6.2. Rektor skal senda hverjum umsækjanda sitt dómnefndarálit. Hann gefur umsækjendum kost á að gera skriflegar athugasemdir við dómnefndarálit áður en það er tekið til afgreiðslu. Berist athugasemdir innan tilskilinna tímamarka skulu þær bornar undir dómnefnd. Athugasemdir umsækjanda ásamt svari dómnefndar skulu fylgja álitinu til lokameðferðar.

6.3. Fara skal með umsóknargögn, dómnefndarálit og önnur skjöl tengd dómnefndarstarfinu sem trúnaðarskjöl.

6.4. Engum má veita fasta kennarastöðu við Listaháskóla Íslands nema meirihluti dómnefndar telji hann hæfan til starfsins.

6.5. Rektor veitir starfið eftir afgreiðslu dómnefndar .

6.6. Fallist rektor ekki á niðurstöðu dómnefndar skal auglýsa starfið að nýju.

7. Endurráðningar.

7.1. Sú meginregla gildir um ráðningar í störf háskólakennara við Listaháskóla Íslands að rektor er heimilt í samráði við stjórn hverju sinni að endurráða í störfin án auglýsingar tvisvar sinnum, en þó að því hámarki að heildarráðningartíminn fari ekki umfram átta ár. Þegar ráðið er í starfið í fjórða sinn skal starfið auglýst á sama grundvelli og um nýja ráðningu sé að ræða.

7.2. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að víkja frá þessari meginreglu. Rektor skal þá leggja fram rökstutt álit sem greinir þær sérstöku ástæður sem liggja að baki. Heimildin er háð samþykki stjórnar.