MYSCHOOL  /  VEFPÓSTUR  /  INNRI VEFUR  /  ENGLISH
  • NÁMIÐ
  • FÓLK
  • VERK
  • SKÓLINN
  • NÁMIÐ
  • UMSÓKNIR
  • HÖNNUN & ARKITEKTÚR
  • LEIKLIST & DANS
  • LISTKENNSLA
  • MYNDLIST
  • TÓNLIST

UMSÓKN UM NÁM Í HÖNNUNAR- & ARKITEKTÚRDEILD

Opið er fyrir umsóknir í meistaranám í Hönnun til 7. júní 2012

Umsóknarfrestur í bakkalárnám fyrir skólaárið 2012-13 er liðinn. Opnað verður fyrir umsóknir í bakkalárnám við hönnunar- og arkitektúrdeild fyrir skólaárið 2013-14 í janúar 2013.

Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun, verkvit og grunnþekkingu í listum.

Mikilvægar dagsetningar

Meistaranám í Hönnun

120 eininga fullt staðarnám í 2 ár

Frestur til að skila inn umsóknum

7. júní 2012

Viðtöl

18.-20.júní 2012

Tilkynningar um inntöku póstlagðar

fyrir lok júní 2012

Upphaf haustmisseris

27. ágúst 2012

Kennsla fer fram á ensku

Námsgjöld Isk 780.000 á ári.

Hámsarksfjöldi eru 12 nemendur á ári

Námið er lánshæft hjá LÍN

Til að umsókn í meistaranám sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn í hönnunar- og arkitektúrdeild
  • Prentuð og undirrituð umsókn ásamt útprentaðri námstillögu
  • Ferilskrá
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda

Bakkalárnám í Hönnun

Frestur til að skila inn umsóknum

23. mars 2012 til kl. 16.00

Síðasti dagur póststimpils með innsendum umsóknum

23. mars 2012

Tilkynningar um inntöku póstlagðar

23.maí 2012

Sækja skal innsend verk

í júní 2012

Upphaf haustmisseris

20. ágúst 2012

Til að umsókn sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn í hönnunar- og arkitektúrdeild
  • Prentuð og undirrituð umsókn
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda

INNTAKA

Sótt er um inngöngu í hverja námsbraut sérstaklega. Til að öðlast inngöngu í námið þurfa umsækjendur að hafa stúdentspróf og hafa lagt fram möppu með vinnu sinni. Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt undirbúningsnám frá hönnunar- eða myndlistardeildum framhaldsskólanna, en þó er slíkt ekki skilyrði.

Við inntöku í hönnunar- og arkitektúrdeild er skipuð sérstök inntökunefnd fyrir hverja námsbraut. Nefndin er skipuð þrem fagaðilum sem velja nemendur úr hópi umsækjenda. Valið byggir á mati á innsendum verkum og viðtölum. Umsækjendur geta átt von á því að þurfa að mæta í verklegt próf.

Mikilvægt er að kynna sér vel inntökuferlið. Skrifleg umsókn ásamt möppu (portfolio) með sýnishornum af verkum umsækjanda þurfa að berast Listaháskóla Íslands samkvæmt auglýstum fresti. Öll gögn sem fylgja umsókninni, s.s. einkunnir og meðmæli skulu vera staðfest afrit. Umsóknir sem sendar eru í pósti skulu póstlagðar eigi síðar en auglýstur frestur rennur út. Möppur skulu sóttar aftur á skrifstofu skólans í Þverholti 11 innan tilgreinds tímaramma. Ósóttar möppur verða ekki geymdar og áskilur skólinn sér rétt til að eyða þeim.

INNTÖKUFERLI

Inntökuferlið er í eftirfarandi þrepum:

1. Eftir að umsóknir hafa verið metnar með tilliti til almennra og sérstakra inntökuskilyrða (sbr. uppl. fyrir umsækjendur) fer hver inntökunefnd yfir innsend verk. Mælikvarðarnir sem gengið er út frá eru fagleg kunnátta og listrænt gildi. Sérstök áhersla er lögð á að meta þau verk umsækjenda sem þeir hafa unnið sjálfstætt og eftir eigin forsendum. Umsækjendur sem standast mat inntökunefndar komast í úrtakshóp.

2. Þeim sem komast í úrtakshóp er boðið í viðtöl. Viðtalið hefur þann tilgang að kanna almennan áhuga umsækjenda á tilvonandi námi, afstöðu þeirra og viðhorf til hönnunar- og arkitektúrs, skilning þeirra á hönnunarheiminum og hugmyndir að baki verkum þeirra. Umsækjandi má gera ráð fyrir því að þurfa að tjá sig um verk þau sem hann hefur sent inn. Gera má gera ráð fyrir því að viðtöl fari fram á ensku.

3. Loks er inntökunefnd heimilt að bjóða umsækjendum að þreyta inntökupróf ef þess er talin þörf. Prófið er í tveimur áföngum: þekkingarpróf og verkefni. Með þekkingarprófinu, sem er í formi krossaprófs, er reynt að kanna almenna þekkingu umsækjandans á listum og samhengi þeirra. Verkefnið felur í sér úrlausnir sem ætlað er að sýna listræna hugsun umsækjandans.

4. Tilkynningar um inntöku verða sendar út í maí 2012. Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta á skrifstofu deildarinnar fyrir maílok hvort þeir hyggist taka því og greiða staðfestingargjald. Gjaldið er óafturkræft en gengur upp í skólagjöld mæti viðkomandi í námið um haustið.

5. Öllum umsækjendum verður sent skriflegt svar við umsóknum. Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og henni er ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.

MAPPAN

Umsækjendur í hönnunar og arkitektúrdeild skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu (portfólíó), í PAPPÍRSFORMI, sem þeir leggja fram með formlegri umsókn. Þ.m.t. sýnishorn úr hreyfimyndum; til að sýna slík verk á að gera “storyboard” með “still”-myndum úr verkinu og setja verkið með á rafrænu eða vísa á það. Það er ekki leyfilegt að skila aðeins rafrænni möppu.  Ekki er tekið við geisladiskum, minniskubbum né er hægt að vísa í heimasíður, nema sem ítarefni. Verkin eiga að endurspegla persónuleika nemandans, varpa ljósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum. Ekki er nauðsynlegt að öll verkin séu fullgerð eða þau útfærð til hins ítrasta. Þvert á móti er mikilvægt að þar sé einnig að finna hvers konar skissur og teikningar, ljósmyndir, texta og jafnvel hljóðverk. Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati nemandans sjálfs getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill ná fram með vinnu sinni á viðkomandi sviði og getur vitnað til um hvort hann hefur hæfileika til að koma því á framfæri við aðra.

Umsækjandi sem sækir um skólavist við fleiri en eina námsbraut innan deildarinnar skal leggja fram möppu með hverri umsókn (þ.e. sérstök mappa þarf að fylgja hverri umsókn). Möppur skulu vera nafnlausar (þær fá umsóknarnúmer í móttöku).

Rafræn umsókn í hönnunar- og arkitektúrdeild

Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu Hönnunar- og arkitektúrdeildar 

HÖNNUN & ARKITEKTÚR

UMSÓKNARFRESTUR TIL 23. MARS

DAGSETNING PÓSTSTIMPILS GILDIR

TILKYNNINGAR UM INNTÖKU
PÓSTLAGÐAR 23. MAÍ

INNSEND VERK SKULU SÓTT Í JÚNÍ

UPPHAF HAUSTMISSERIS 20. ÁGÚST

RAFRÆN UMSÓKN
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS
Þverholti 11, 105 Reykjavík | Sími 552 4000 | Fax 552 3629 | lhi@lhi.is
Þverholti 11
105 Reykjavík
Sími 552 4000
Fax 552 3629
hafdis@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
estherj@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2417
Fax 520 2409
svanborg@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2400
Fax 520 2409
helgapalina@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
soleybjort@lhi.is
HÖNNUN & ARKITEKTÚR
LEIKLIST & DANS
LISTKENNSLA
MYNDLIST
TÓNLIST