Opnað hefur verið fyrir umsóknir í listkennslu. Umsóknarfrestur til að sækja um nám fyrir skólaárið 2012-2013 er 11. maí 2012.
Í listkennsludeild eru tvær námsleiðir
Tveggja ára, 120 eininga meistarnám í listkennslu og eins árs, 60 eininga diplómanám til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi.
Mikilvægar dagsetningar
| Frestur til að skila inn umsóknum | 11. maí 2012 til kl. 16.00 |
| Síðasti dagur póststimpils með innsendum umsóknum | 11. maí 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | 8. júní 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2012 |
Til að umsókn sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:
Rafræn umsókn í listkennsludeild
Listkennsla / Kennsla, miðlun, verkefnastjórn
Námið miðar að því að þjálfa listafólk til kennslu ásamt því að efla með
því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum
vettvangi, og leiða listverkefni bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Listkennslunámið er byggt á námskeiðum í kennslu-, uppeldis- og
sálarfræði, heimspeki og félagsfræði, samhliða þjálfun í kennslu og
miðlun listgreinar á vettvangi.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi kennarans, bæði fræðilega og á vettvangi. Þeir geti skipulagt nám og námsþætti út frá námskrám grunn- og framhaldsskóla og valið námsgögn, námsaðferðir og matsaðferðir við hæfi. Kennsla og miðlun eru einnig skoðuð í víðara samhengi og nemendur hvattir til að setja fram eigin sýn og hugmyndir um listnám og námsframboð í samfélaginu.
Skipulag námsins miðar að því að þjálfa leiðtoga í listgreinakennslu þar sem listafólk úr ýmsum listgreinum vinnur saman og samhliða að kennslufræðilegum úrlausnarefnum. Þó hver nemandi einbeiti sér að sinni sérgrein á sér stað stöðugt samtal milli listgreinanna, sem opnar dyr fyrir samvinnu þeirra á milli og þar með fyrir nýjum möguleikum í listkennslu.
Markmið
Markmið með meistaranámi í listkennslu er í grunnatriðum þríþætt:
Inntökuskilyrði
Auk viðtals getur nemandi þurft að sýna fram á hæfni sína t.d. með ferilmöppu, dæmum af fyrri verkum, lifandi túlkun eða flutningi eftir því sem við á. Námið veitir akademísk réttindi til að sækja til menntamálaráðuneytis um lögvernduð réttindi til kennslu á grunnskólastigi.
Við mat á námi frá erlendum háskólum er stuðst við opinber gögn og upplýsingar frá viðkomandi landi. Einnig liggja til grundvallar alþjóðasamningar sem Ísland á aðild að ásamt Lissabon samningnum og samningi milli Norðurlandanna um gangkvæma viðurkenningu á námi. Leiki einhver vafi á að umsækjandi hafi fullgild próf samkvæmt þessum samningum er hægt að leita til NARIC /ENIC skrifstofu sem staðsett er í Háskóla Íslands og óska eftir mati samkvæmt fyrrnefndum samningum.
Prófgráða
Meistaranámi í listkennslu, 120 einingum lýkur annað hvort með prófgráðunum MA í listkennslu eða M.Art.Ed. Kennsluréttindi í listkennslu fyrir framhaldsskóla, 60 einingum, lýkur með diploma í listkennslu.
Deildarforseti: Kristín Valsdóttir
Deildarfulltrúi: Svanborg Matthíasdóttir
Umsókn og inntökuferli
Umsókn þurfa að fylgja staðfest afrit prófskírteina, greinagerð um ástæður umsóknar, ferilskrá yfir listræn störf og umsagnir tveggja meðmælenda.
Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Listkennludeild
Reglur um inntöku í listkennsludeild (74,5 KB)
UMSÓKNARFRESTUR TIL 11. MAÍ
DAGSETNING PÓSTSTIMPILS GILDIR
TILKYNNINGAR UM INNTÖKU
PÓSTLAGÐAR 8. JÚNÍ
UPPHAF HAUSTMISSERIS 20. ÁGÚST