MYSCHOOL  /  VEFPÓSTUR  /  INNRI VEFUR  /  ENGLISH
  • NÁMIÐ
  • FÓLK
  • VERK
  • SKÓLINN
  • NÁMIÐ
  • UMSÓKNIR
  • HÖNNUN & ARKITEKTÚR
  • LEIKLIST & DANS
  • LISTKENNSLA
  • MYNDLIST
  • TÓNLIST

UMSÓKN UM NÁM Í TÓNLISTARDEILD

Opið er fyrir umsóknir í meistaranám í Tónsmíðum til 7. júní 2012

Opið er fyrir umóknir í meistaranám í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi til 11. maí 2012.

Umsóknarfrestur í bakkalárnám fyrir skólaárið 2012-13 er liðinn.

Almennt um tónlistardeildina

Í tónlistardeild er boðið sérhæft tónlistarnám í hljóðfæraleik og einsöng til BMus gráðu og almennt tónlistarnám til BA gráðu, þar sem nemendur geta valið um að sérhæfa sig kirkjutónlist, Mennt og miðlun og í tónsmíðum fyrir ýmsa miðla.

Mikilvægar dagsetningar

Meistaranám í Tónsmíðum

120 eininga fullt staðarnám í 2 ár

Frestur til að skila inn umsóknum

7. júní 2012

Viðtöl

18.-20.júní 2012

Tilkynningar um inntöku póstlagðar

fyrir lok júní 2012

Upphaf haustmisseris

27. ágúst 2012

Kennsla fer fram á ensku

Námsgjöld Isk 780.000 á ári.

Hámsarksfjöldi eru 4 nemendur á ári

Námið er lánshæft hjá LÍN

Meistaranám í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi

Frestur til að skila inn umsóknum

11. maí 2012

Viðtöl

í maí 2012

Tilkynningar um inntöku póstlagðar

í júní 2012

Upphaf haustmisseris

20. ágúst 2012

Til að umsókn í meistaranám sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn í tónlistardeild
  • Prentuð og undirrituð umsókn ásamt útprentaðri námstillögu
  • Ferilskrá
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Ferilmappa með sýnishornum af verkum umsækjenda

Diplóma og bakkalárnám

Frestur til að skila inn umsóknum

23. mars 2012

Stöðupróf

19. og 20. apríl 2012

Inntökupróf og viðtöl

19. og 20. apríl 2012

Tilkynningar um inntöku póstlagðar

í maí 2012

Upphaf haustmisseris

20. ágúst 2012

Til að umsókn sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn í tónlistardeild
  • Prentuð og undirrituð umsókn
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda (á ekki við um umsækjendur í hljóðfæraleik eða söng)

Tónlistardeild greinist í eftirfarandi brautir

Diplóma:

Hljóðfæraleikur / söngur:
- píanó
- strengir/blásarar
- söngur
- annað

BMus gráða:

- Hljóðfæraleikur / söngur:
- píanó
- strengir/blásarar
- söngur
- annað

BA gráða:

Mennt og miðlun
Kirkjutónlist
Tónsmíðar:
- almennar tónsmíðar
- nýmiðlar
- kvikmyndatónlist
- sviðstónlist
- upptökutækni

Kjarni

Í kjarna tónlistarnáms til BA og BMus gráðu eru sameiginleg fög allra brauta. Helstu fög eru: tónfræði, tónheyrn, kórstjórn, tónlistarsaga, ritgerðaskrif, tónbókmenntir ásamt almennum kynningaráföngum um tækni í tónlist og starfsumhverfi tónlistarmanna.

INNTÖKUSKILYRÐI Í NÁM TIL BA EÐA BMus GRÁÐU

Inntökuskilyrðin greinast í almenn og sérstök inntökuskilyrði.

  1. Almenn inntökuskilyrði
    Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Þeir sem ekki uppfylla þessi almennu inntökuskilyrði þurfa að sýna fram á þroska og þekkingu sem meta má til jafns við það nám sem á vantar. Greinargerð þar að lútandi skal fylgja umsókn.
  2. Sérstök inntökuskilyrði
    Auk hinna almennu inntökuskilyrða þurfa umsækjendur að uppfylla viðbótarkröfur um þekkingu á tónlist. Er þar er miðað við að umsækjandi hafi lokið framhaldsstigi samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskólanna eða sambærilegu námi.

Allir sem uppfylla almenn inntökuskilyrði eru boðaðir í stöðupróf í tónfræði, hljómfræði, tónlistarsögu og tónheyrn.

Inntökuferli

BMus gráða og diplóma gráða í hljóðfæraleik / söng

  • Umsóknir eru metnar með tilliti til almennra skilyrða
  • Stöðupróf í tónfræðigreinum
  • Inntökupróf (hljóðfæra / söngpróf)
  • Endanlegar niðurstöður

BA gráða í tónsmíðum, Mennt og miðlun og kirkjutónlist

  • Umsóknir eru metnar með tilliti til almennra skilyrða
  • Stöðupróf í tónfræðigreinum
  • Inntökunefnd metur innsend verk umsækjenda
  • Viðtöl
  • Inntökupróf í orgelleik (á eingöngu við kirkjutónlistarbraut)
  • Endanlegar niðurstöður

Upplýsingar fyrir umsækjendur til grunnnáms í hljóðfæraleik-söng 2011-2012
Upplýsingar fyrir umsækjendur í tónsmíðum, mennt og miðlun og kirkjutónlist 2011-2012
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 1. hluti - tónfræði byrjenda
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 2.hluti - hljómfræði
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 3. hluti - tónheyrn

INNTÖKUSKILYRÐI FYRIR MEISTARANÁM Í TÓNSMÍÐUM

BA / BMus próf í tónsmíðum eða sambærilegt nám sem metið verður af inntökunefnd.
Ítarleg námstillaga þar sem fram koma markmið og rannsóknarsvið náms.

INNTÖKUFERLI

  • Inntökunefnd metur innsend verk umsækjenda og námstillögu
  • Viðtöl
  • Endanlegar niðurstöður

INNTÖKUSKILYRÐI FYRIR MEISTARANÁM Í SKÖPUN, MIÐLUN OG FRUMKVÖÐLASTARFI

BA / BMus gráða í tónlist eða sambærilegt nám og reynsla
Gott vald á tónlistarflutningi sem skal sýnt í inntökuprófi
Skýr listræn sýn og metnaður auk nægrar grunnþekkingar í þeim hæfnisviðmiðum sem sett eru og metin í inntökuferlinu.

INNTÖKUFERLI

Umsóknarferlið er unnið í samvinnu við samstarfsskólana. Sérstakt umsóknareyðublað fyrir námið er að finna í MySchool

1. umferð:

  •  Umsækjandi sækir um rafrænt á lhi.is og sendir útprentað og undirritað eintak af inn ásamt fylgigögnum.
  • Skilað er inn útfylltri umsókn á ensku sem sótt er á síðu Joint Music Master
  • Skilað er inn námsáætlun og bréfi sem lýsir áhugasviði og áformum varðandi framtíðarferil í tónsköpun og miðlun.
  • Skilað er inn upplýsingum um nám og starfsferil auk DVD upptöku af flutningi umsækjanda.

LHÍ velur þá sem komast í aðra umferð. Umsækjandi er beðinn um að velja tvo af hinum samstarfsskólunum til að dvelja á  annarri námsönninni, einn sem fyrsta val og annan til vara. Ekki verður þó hægt að ganga frá því endanlega á þessu stigi. Eftir að 2. umferð lýkur verður ljóst hvernig nemendurnir raðast niður á skólana á annarri önn.

2.  umferð:

  • Tónlistarflutningur.
    (tónheyrnarkönnun sleppt)
  • Kynning umsækjandans á námsáætlun og áformum um verkefni.
  • Umræður um annað kynningarefni, m.a. mynddisk, sem umsækjandi lagði fram.
  • Smiðja, eða “Workshop” með öðrum umsækjendum.
  • Athugið að viðtalið fer fram á ensku þar sem inntökunefndina skipa að hluta aðilar úr samstarfsskólunum

Nánari upplýsingar um nám og umsóknir í tónlistardeild veitir Sóley Björt Guðmundsdóttir, deildarfulltrúi tónlistardeildar

Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu Tónlistardeildar

Rafræn umsókn í tónlistardeild 

TÓNLIST

DIPLÓMA OG BAKKALÁRNÁM

UMSÓKNARFRESTUR TIL 23. MARS

STÖÐUPRÓF 19. & 20. APRÍL

INNTÖKUPRÓF OG VIÐTÖL 19. & 20. APRÍL

TILKYNNINGAR UM INNTÖKU
PÓSTLAGÐAR Í MAÍ

UPPHAF HAUSTMISSERIS 20. ÁGÚST

MEISTARANÁM Í SKÖPUN, MIÐLUN OG FRUMKVÖÐLASTARFI

UMSÓKNARFRESTUR TIL 11. MAÍ

VIÐTÖL Í MAÍ

TILKYNNINGAR UM INNTÖKU
PÓSTLAGÐAR Í JÚNÍ

UPPHAF HAUSTMISSERIS 20. ÁGÚST

RAFRÆN UMSÓKN
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS
Þverholti 11, 105 Reykjavík | Sími 552 4000 | Fax 552 3629 | lhi@lhi.is
Þverholti 11
105 Reykjavík
Sími 552 4000
Fax 552 3629
hafdis@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
estherj@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2417
Fax 520 2409
svanborg@lhi.is
Laugarnesvegi 91
104 Reykjavík
Sími 520 2400
Fax 520 2409
helgapalina@lhi.is
Sölvhólsgötu 13
101 Reykjavík
Sími 552 5020
Fax 552 6314
soleybjort@lhi.is
HÖNNUN & ARKITEKTÚR
LEIKLIST & DANS
LISTKENNSLA
MYNDLIST
TÓNLIST