Skipulag og stjórnsýsla
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 43/1995 um listmenntun á háskólastigi og samkvæmt skipulagsskrá er staðfest var af menntamálaráðuneytinu 21. september 1998.
Samkvæmt skipulagsskrá er það hlutverk skólans að sinna æðri menntun á sviði listgreina, vinna að eflingu listmennta með þjóðinni og miðla fræðslu um listir og menningu til almennings. Skólinn fékk starfsleyfi frá menntamálaráðuneytinu 6. maí 1999.











