Söguágrip

Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun. Hann var stofnaður 21. sept. 1998. Sérstök bráðabirgðastjórn skipuð af menntamálaráðherra undirbjó stofnunina. Á stofnfundinum var skólanum sett skipulagsskrá sem var undirrituð af fulltrúum Bandalags íslenskra listamanna og menntamálaráðherra. Dómsmálaráðherra staðfesti skipulagsskrána 29. sept. sama ár. Samkvæmt skipulagsskrá er hlutverk Listaháskólans að sinna æðri menntun á sviði listgreina. Hann skal jafnframt vinna að eflingu listmennta með þjóðinni og miðla fræðslu um listir og menningu til almennings.

Þann 24. mars 1999 undirrituðu skólinn og menntamálaráðherra yfirlýsingu sem fól í sér hvernig staðið yrði að uppbyggingu menntunarinnar. Fyrst skyldi stofnað til náms í myndlist haustið 1999, leiklistardeild yrði stofnuð haustið 2000 og tónlistardeild 2001. Í áætluninni var einnig kveðið á um að skólinn gerði tillögur um með hvaða hætti hann gæti sinnt menntun á sviði annarra listgreina, s.s. á sviði hönnunar og byggingalistar. Listaháskólinn fékk starfsleyfi 6. maí 1999 og hóf þá um haustið starfsemi sína með rekstri myndlistardeildar.

Uppbygging Listaháskólans hefur verið hröð síðan rekstur hans hófst með stofnun myndlistardeildar 1999. Í samræmi við yfirlýsinguna frá 24. mars 1999 hóf skólinn kennslu í leiklist haustið 2000 og í tónlist 2001. Skólinn hóf síðan rekstur sjálfstæðrar hönnunardeildar 2001 og ári síðar var tekið upp nám í arkitektúr. Námi í kennslufræðum fyrir listafólk var skipaður sjálfstæður sess innan skólans frá og með haustinu 2001 og nýjar brautir innan leiklistardeildar tóku til starfa haustið 2005, þ.e. eins árs dansnám í samvinnu við Íslenska dansflokkinn og þriggja ára nám í samtíma leiklistarstarfsemi sem kallast „fræði og framkvæmd.“

Samfara uppbyggingu deilda hafa stoðsviðin þróast hvert með sínum hætti, þ.m.t. bókasafn og upplýsingaþjónusta fyrir allar listgreinar og tölvu- og netþjónusta. Í undirbúningi er stofnun rannsóknarþjónustu til stuðnings rannsókna innan skólans. Skólinn hefur frá upphafi rekið Opna listaháskólann, sem býður upp á námskeið á sviðum lista fyrir almenning og opna fyrirlestra um menntir og menningu.

Skólinn er í samstarfi við allar helstu háskóla- og listastofnanir landsins og tekur virkan þátt í öllum helstu samtökum og tengslanetum á þeim sviðum sem hann starfar á. Ný stefnuyfirlýsing til fjögurra ára var samþykkt af stjórn skólans í nóvember 2004, og markmið hennar endurýjuð í febrúar 2007. Í yfirlýsingunni er m.a. undirstrikað að skólinn vill efla framsækna hugsun í listum og menningu og örva hvers konar nýsköpun á öllum sviðum.

Stjórn skólans er skipuð 5 mönnum. Menntamálaráðherra tilnefnir tvo en þrír eru tilnefndir af Félagi um Listaháskóla Íslands. Í stjórn sitja þau Karólína Eiríksdóttir, Sigurður Nordal, Kolbrún Halldórsdóttir, Jón Ólafur Ólafsson og Pétur Einarsson. Rektor er Hjálmar H. Ragnarsson.