Starfsmannastefna

Markmið
Listaháskólinn er samfélag þar sem ríkir jafnræði, virðing og gagnkvæmt traust. Markmiðið er að skólinn sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem vinnur skapandi og atorkusamt fólk sem vill leggja sitt af mörkum til að efla listmenntun, listsköpun og listrannsóknir í landinu. Til þess vill skólinn tryggja starfsfólki sínu sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.

Leiðarljós
Leiðarljós í starfsmannastefnu skólans eru

  • Frumkvæði
  • Ábyrgð
  • Virðing
  • Trúnaður
  • Sveigjanleiki

Samskipti og upplýsingar
Samskipti fólks innan Listaháskólans byggjast á virðingu og umburðarlyndi. Jafnræðis skal gætt á öllum sviðum og gerir skólinn engan mun á fólki vegna kynferðis, kynþáttar, fötlunar, skoðana eða annarra almennra þátta sem greinir fólk að.

Skólinn sér um að boðleiðir séu skýrar innan stjórnsýslu hans og að upplýsingar berist með skipulögðum hætti til starfsfólks. Stjórnendum ber skylda til að upplýsa starfsmenn sína um málefni sem varða störf þeirra, réttindi og skyldur, og hvetja þá til samstarfs og til að deila þekkingu sín á milli.

Starfsmenn skólans skulu halda trúnað um viðkvæm málefni varðandi nemendur og kennara og um hvað það eina sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og gæta ber trúnaðar um. Starfsmenn sem látið hafa af störfum eru bundnir sömu skyldu.

Sýni starfsmaður ósæmilega hegðun gagtnvart öðrum starfsmanni, s.s. kynferðislega áreitni eða einelti, getur það leitt til áminningar rektors og/eða starfsmissis.

Ráðningar og starfsþróun

  • Starfsmannaþörf. Þegar skólinn ákveður að ráða fólk til nýrra starfa skulu liggja fyrir því góð og gild rök. Markmiðin þurfa að vera ljós og starfslýsing skýr. Við það að starfsmaður lætur af starfi skal skólinn meta sérstaklega hvort ráðið verður aftur í það sama starf.
  • Starfsauglýsingar. Laus störf fastra starfsmanna skulu að jafnaði auglýst, en heimilt er að víkja frá þeirri reglu ef ástæður gefa tilefni til. Í starfsauglýsingum skal hafa hliðsjón af jafnréttisstefnu skólans. Störf deildarforseta og akademískra starfsmanna eru auglýst í samræmi við sérstakar reglur sem um þau gilda. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
  • Ráðningar. Við ráðningu til starfa skal sérstaklega horfa til menntunar og starfsreynslu umsækjenda og til þess hvernig ætla má að viðkomandi umsækjandi falli að starfsumhverfi skólans. Sérstakar reglur gilda um veitingu akademískra starfa við skólann. Ráðning rektors, deildarforseta og kennara er tímabundin.
  • Móttaka nýrra starfsmanna. Listaháskólinn leggur metnað sinn í að taka vel á móti nýjum starfsmönnum, hvort sem þeir koma til starfa í lengri eða skemmri tíma. Næsti yfirmaður er ábyrgur fyrir því að þeim sé kynnt starfsemi skólans, starfsvenjur, samstarfsfólk og skipulag.

  • Stundakennarar og sérfræðingar. Listaháskólinn ræður til sín fjölda stundakennara og sérfræðinga sem falin eru afmörkuð verkefni innan kennslurskrár skólans. Með þessu vill skólinn byggja tengsl við hið lifandi lista- og menningarlíf utan stofnunarinnar. Ekki er skylt að auglýsa eftir umsóknum um störf stundakennara en viðkomandi deildarforseti gerir tillögu til rektors um ráðningu þeirra. Stundakennarar og sérfræðingar bera sömu skyldur varðandi trúnað og ábyrgð og aðrir starfsmenn skólans.

  • Starfsþróun. Listaháskólinn beitir sér fyrir því að fastráðnir starfsmenn fái þjálfun og símenntun, innan skólans sem utan, til að auka við þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist þeim í starfi. Í því felst að skólinn beitir sér fyrir kennaraskiptum á milli háskóla, þátttöku starfsmanna í málþingum og ráðstefnum sem viðkoma þeirra starfi og sérmenntun, styður kennara til listsköpunar og rannsókna í samræmi við ákvæði í ráðningasamningum, og eftir því sem kostur gefst aðstoðar skólinn starfsmenn við að sækja námskeið og vinnustofur sem eru á þeirra sviði. Sérstakur Menntasjóður er starfræktur innan skólans. Um hann gilda sérstakar reglur.
  • Starfsmannasamtöl. Fastir starfsmenn Listaháskólans eiga rétt á starfsmannasamtali a.m.k. einu sinni á ári og skulu stjórnendur boða til þeirra. Tilgangur samtalsins er að gefa viðkomandi starfsmanni og stjórnanda kost á að ræða líðan starfsmanns og árangur hans í starfi, skýra hvaða væntingar báðir aðilar hafa til starfsins og starfseminnar í heild, fjalla um tillögur starfsmannsins um umbætur á verklagi og hvernig hann lítur á stöðu sína innan skólans, og ræða almennt um horfur til framtíðar. Stjórnandi skal gera skýrslu um samtalið sem staðfest er af viðkomandi starfsmanni.

  • Starfslok vegna aldurs. Miðað er við að starfslok verði við 70 ára aldur. Listaháskólinn vill mæta óskum starfsmanna um starfslok með því að breyta starfshlutfalli og/eða starfsskyldum síðustu misserin í starfi, sé þess nokkur kostur.
  • Uppsögn á ráðningasamningi. Sú meginregla gildir að starfsmaður og skólinn geta sagt upp gildandi ráðningasamningi með tilskildum fyrirvara. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur fastra starfsmanna er 3 til 6 mánuðir. Aðeins rektor eða framkvæmdastjóri í umboði hans geta sagt upp ráðningasamningi fyrir hönd skólans.Ef til óánægju kemur með frammistöðu starfsmanns skal næsti yfirmaður hans greina fyrir honum í  hverju sú óánægja felst. Starfsmaðurinn hefur þá rétt til að skýra sitt mál. Verði ekki samkomulag um úrbætur getur komið til uppsagnar starfsmanns.

    Verði starfsmaður uppljós af því að brjóta alvarlega af sér í starfi, getur skólinn vikið honum tafarlaust úr starfi. Brot starfsmanna teljast alvarleg þegar þau varða helstu gildi skólans og siðferðisreglur.

Launa- og kjaramál
Listaháskóli Íslands leitast við að hafa á að skipa framúrskarandi starfsfólki á öllum sviðum skólastarfsins. Til þess að svo megi verða vill skólinn búa starfsfólki sínu góð launakjör og hvetjandi starfsumhverfi sem stenst samanburð við það sem gerist í sambærilegum háskólum.

Ákvarðanir um laun skulu vera málefnalegar og taka mið af kröfum til starfsins, hæfni starfsmanns og frammistöðu í starfi. Starfsmenn eiga rétt á einu viðtali á ári við yfirmann sinn um laun sín og kjör. Kennarar og deildarforsetar óska eftir viðtali hjá rektor og framkvæmdastjóra, en starfsmenn stoðsviða hjá viðkomandi forstöðumanni. Í því viðtali skal starfsmaðurinn skýra ástæður fyrir kröfum sínum og hvaða væntingar hann hefur hvað þessa þætti varðar. Vegna undirbúnings fyrir gerð fjárhagsáætlana fer skólinn fram á að launaviðtöl fari fram í febrúarmánuði.

Listaháskólinn leggur áherslu á að starfsmenn séu stundvísir og við störf á þeim tíma sem samið hefur verið um. Nýta skal kosti sveigjanleika á vinnustað til að auðvelda starfsfólki að samræma einkalíf, fjölskylduábyrgð og starf. Þannig skal starfsfólk skólans eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið og hentað getur bæði starfsmanni og skólanum. Samkomulag þarf að ríkja við næsta yfirmann um hvernig sveigjanleika í starfi verði komið við.

Þá telur skólinn mikilvægt að starfsmenn séu reiðubúnir til að deila verkefnum sín á milli eftir því sem starfsemin krefst hverju sinni. Með því móti skapast fjölbreytni í starfi og þekkingin berst á milli. Þá getur komið til þess að fólk flytjist á milli starfa, svo fremi sem kröfur um faglega þekkingu og getu eru sambærileg og launakjör séu virt.

Starfsmenn skulu skipuleggja orlof sitt með tilliti til starfsemi skólans, og í samráði við yfirmann og annað samstarfsfólk. Óskir þar um skulu liggja fyrir eigi síðar en um miðjan maí ár hvert. Launafulltrúi skólans heldur yfirlit um orlof allra starfsmanna. Skólinn gefur út sérstakar leiðbeiningar um töku orlofs og veikindarétt.

Öryggi og heilbrigði
Listaháskólinn skal tryggja öryggi starfsfólks á vinnustað og búa því heilsusamlegt og aðlaðandi starfsumhverfi. Skólinn leitast við að láta hverjum starfsmanni í té þá aðstöðu og búnað sem honum eru nauðsynleg til að geta sinnt starfi sínu af kostgæfni.

Starfsmannafélag
Skólinn óskar eftir samstarfi við Starfsmannafélag Listaháskólans um þau mál sem varða réttindi og skyldur starfsmanna og sem lúta almennt að velferð þeirra í starfi. Trúnaðarmaður Starfsmannafélagsins er fulltrúi starfsmanna gagnvart skólanum í viðkvæmum málum.

Framkvæmd, ábyrgð og gildistími
Framkvæmd starfsmannastefnu er á ábyrgð stjórnenda skólans. Taka skal mið af starfsmannastefnu við gerð starfs- og fjárhagsáætlana deilda og sviða.

Samþykkt á fundi stjórnar Listaháskóla Íslands 20. febrúar 2007