Listaháskóli Íslands starfar í þremur byggingum. Sölvhólsgötu 13, Laugarnesvegi 91 og Þverholti 11. Samtals er húsnæði skólans 12.000 fm². Í öllum byggingum er lesaðstaða, aðstaða til hópavinnu og tölvuver. Hver bygging hefur sérstaka aðstöðu fyrir þá starfsemi sem þar fer fram, í Laugarnesi og Þverholti eru nemendasvæði fyrir hönnunar- og arkitektúrdeild og myndlistardeild og kennaranám hefur einnig sitt svæði. Á Sölvhólsgötu eru æfingaherbergi og tónlistarsalur fyrir tónlistardeildina og dans-, leikfimi- og æfingasalir fyrir leiklistar- og dansdeildina.
Aðgangur að húsnæði skólans eftir lokun virka daga og um helgar er veittur með rafrænu aðgangskerfi.
Opnunartími
Byggingar skólans eru opnar frá kl. 8.00-16.00 alla skóladaga. Frá kl. 16.00-01.00 mánudaga til föstudaga og frá kl. 8.00-01.00 laugardaga og sunnudaga er rafrænt aðgangskerfi virkt.
Nemendur fá afhenta lykla að útidyrum skólans hjá þjónustufulltrúa og aðgangskóða að dyrum innan skólans hjá tölvudeild. Nemendum ber að skila lykli að námi loknu. Glatist lykill kostar 3.000. kr. að fá hann endurnýjaðan.
Umgengni
Listaháskólinn gerir þá kröfu til nemenda sinna að þeir gangi vel um húsnæði og tækjakost skólans.Í því sambandi er rétt að benda á umgengnireglur skólans:
- • Nemendum og starfsfólki ber að ganga vel um húsnæði skólans og taka virkan þátt í hreingerningadögum sem boðað er til í lok hverrar kennslulotu.
- • Nemendum og starfsfólki ber að loka gluggum og dyrum, skrúfa fyrir krana osfrv. þegar þeir yfirgefa húsnæði skólans.
- • Ef húsmunir eða tæki skemmast eða glatast ber að tilkynna það þjónustufulltrúa.
- • Gæta skal vel að lyklum og lykilorðum. Ekki er heimilt að lána lykla, og skal tilkynna um glataða lykla til umsjónarmanns húseigna strax og það uppgvötvast.
- • Tilkynna skal um grunsamlegar mannaferðir innan skólans hvenær sem er sólarhrings.
- • Nemendur skulu fjarlægja verk sín og persónulega muni í lok hverrar annar. Þeim munum sem eftir verða á vinnusvæðum skólans verður hent eftir lok skólaárs.
- • Nemendur og starfsfólk skal fara að vinnureglum um endurvinnslu og umhverfisvernd innan skólans.
- • Reykingar eru ekki leyfilegar í húsnæði skólans
Umsjónarmaður húseigna er: Ólafur Hallgrímsson, s. 896 1470