Tölvu- og vefþjónusta LHÍ ber ábyrgð á rekstri tölvukerfis skólans og tækni- og tölvuþjónustu við starfsmenn og nemendur.
Aðalskrifstofa tölvusviðs er staðsett á fyrstu hæð í Þverholti 11, herbergi 101.
Á Sölvhólsgötu er starfsmaður tölvusviðs við á þriðjudögum frá kl. 9.00-16.00
og í Laugarnesi eru starfsmenn tölvusviðs við á fimmtudögum frá kl. 9.00 -16.00 og aðra virka daga frá kl. 13.00 – 16.00.
Starfsmenn tölvusviðs eru allir með fast aðsetur í Þverholti 11, skrifstofu tölvusviðs á fyrstu hæð:
| Ágúst Loftsson | s: 899 9081 |
| Sigurþór Heimisson | s: 845 4149 |
| Bjarni Þórisson | s: 844 7848 |
Starfsmenn tölvusviðs eru að störfum frá kl. 8.00 - 16.00. Oft eru
þeir að störfum fjarri skrifstofum sviðsins og er þá hægt að senda ósk
um aðstoð í tölvupósti.
Til að óska eftir þjónustu er sendur tölvupóstur á verkbeidni@lhi.is. Þá er gefið upp nafn og staða innan skólans (nemandi, kennari, skrifstofa) ásamt netfangi og símanúmeri og borið upp erindi og staðsetning ef við á. Bilanir eða önnur atriði sem stöðva kennslu njóta forgangs og og er þá hægt að hafa samband í farsíma viðkomandi starfsmanna.
Reglur um notkun tölvubúnaðar í eigu eða umsjá Listaháskólans gilda fyrir alla starfsmenn og nemendur skólans. Notendum er skylt að kynna sér reglurnar. Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvukerfi LHÍ, sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða, getur það endað með brottvísun úr Listaháskóla Íslands.
Nemendur fá úthlutað 25GB pósthólfi hjá lhi.is.
Nemendur fá úthlutað heimasvæði á skráaþjóni allt að 10GB. Stærri svæðum er úthlutað til stakra verkefna ef óskað er eftir því.
Nemendur hafa 1000 punkta prentunarkvóta á önn sem samsvarar 250 A4 síðum í svart/hvítri laserprentun. Ef þeir fara umfram hann þurfa þeir að greiða sérstaklega fyrir prentun. Það er gert á aðalskrifstofu í Þverholti og hjá þjónustufulltrúum í Laugarnesi og Sölvhólsgötu. 100 punktar kosta 1000 krónur.
Upplýsingar og aðstoð eftir atvikum til að:
Tengjast netkerfi
Stilla aðgang að póstþjónustu skólans
Komast á skráaþjóna skólans
Á vinnusvæðum nemenda eru 1Gb nettengingar í tengla og 54Mb þráðlaust samband.
Nemendur geta fengið aðstoð við grunnþjónustu sem snýr að námi þeirra við skólann. Þau kerfi sem þjónustudeild styður eru: Mac OS X, Linux, Windows XP, Vista og 7. Ef ekki er hægt að stilla vélar inn á grunnþjónustu vegna bilunar í vélbúnaði, stýrikerfi eða öðrum hugbúnaði verður nemandi að snúa sér til síns viðgerðaraðila.
Upplýsingar og aðstoð eftir atvikum til að: tengjast netkerfi skólans, stilla póstþjónustu skólans, komast á skráarþjóna skólans, setja upp prentara skólans á vélum kennara þar sem það á við og fleira.
Vélar og tæki starfsfólks og kennara í eigu skólans fá fulla þjónustu, jafnt vélbúnaðar sem hugbúnaðar. Stundakennarar geta fengið aðstoð við grunnþjónustu sem snýr að kennslu þeirra við skólann.
Ef ekki er hægt að stilla vélar inn á grunnþjónustu vegna bilunar í vélbúnaði, stýrikerfi eða öðrum hugbúnaði verður kennari að snúa sér til síns viðgerðaraðila.
Í skólanum eru til tæki til prentunar í svart/hvítu og lit. Ef prenta þarf mikið magn gagna er rétt að hafa samband við tölvusvið sem getur metið hagkvæmni innanhússprentunar eða mælt með aðkeyptri prentun.