Rekstur eftirtalinna verkstæða myndlistar- og hönnunar- og arkitektúrdeilda er sameiginlegur og eru verkstæðin því opin öllum nemendum í báðum deildum. Þar fer fram kennsla og jafnframt aðstoða umsjónarmenn nemendur og kennara við úrlausnir verkefna. Bóka þarf tíma fyrirfram hjá umsjónarmönnum verkstæða. Nemendur þurfa að hafa lokið tilteknum námskeiðum til að hafa aðgang að stóru verkstæðunum í Laugarnesi og einnig þurfa þeir að undirrita samning við skólann um notkun og umgengi á verkstæðum.
Samningur um aðgang að verkstæði
Forstöðumaður verkstæða er: Jóhann Torfason, 520 2415
Ljósmynda- og myndvinnsluver – Laugarnesvegi 91
Í myndvinnsluveri fer fram vinna með filmur, stafræna myndvinnslu og
útprentun. Í ljósmyndaveri er aðstaða til að vinna lit og svart/hvítar
myndir, bæði filmur og stækkanir.
Umsjónarmaður: Eric Wolf, s. 520 2413
Almenn smíðaverkstæði – Laugarnesvegi 91
Í smiðjunni í Laugarnesi eru trésmíða- og járnsmíðaverkstæði. Á
trésmíðaverkstæðinu er aðstaða og tæki til að vinna flest verk. Á
járnsmíðaverkstæðinu er aðstaða til almennrar vinnu við járn og aðra
málma svo sem skurð, raf- og logsuðu. Jafnframt er í tengslum við
verkstæðin aðstaða til mótunar og afsteypu.
Umsjónarmaður: Gulleik Løvskar
Prentverkstæði – Laugarnesvegi 91
Nemendur hafa aðgang að verkstæðinu til að útfæra hugmyndir sínar í
prentmiðla. Verkstæðið er vel búið tækjum og áhöldum fyrir flestar
prentaðferðir. Í tengslum við verkstæðið eru tæki og aðstaða til
innrömmunar.
Umsjónarmaður: Jóhann Torfason, s. 520 2415
Smíðaverkstæði – Þverholti 11
Á fyrstu hæð í Þverholti er lítið smíða- og mótunarverkstæði fyrir líkanagerð. Einnig er þar leirofn.
Umsjónarmaður: Gulleik Løvskar
Eftirtalin verkstæði tilheyra fyrst og fremst ákveðnum deildum, en nemendur annarra deilda geta haft aðgang að þeim uppfylli þeir tiltekin skilyrði og sé því við komið. Bókanir fara í gegnum viðkomandi deildarskrifstofu eða hjá þjónustufulltrúa.
Vídeóver – Laugarnesvegi 91
Í boði er aðstaða fyrir nemendur myndlistardeildar, sem vilja búa til og
vinna með vídeó og hljóð. Hægt er að vinna með gagnvirka tækni. Velja
má ólíkar aðferðir vídeó-og hljóðgerðar, meðhöndlun og úrvinnslu í
sambandi við aðra listmiðla svo sem innsetningar, vídeó, gjörninga,
spuna, tónleika og internet. Til þess að vinna á verkstæðinu þurfa
nemendur að hafa lokið tilteknum námskeiðum og/eða hafa þekkingu og
kunnáttu til þess að vinna með tækin.
Umsjónarmaður: Sigurður Guðjónsson, s. 520 2412
Textílverkstæði – Skipholti 1
Á efstu hæð í Skipholti er textílverkstæði þar sem aðstaða er fyrir
þrykk, sníða- og saumaskap, prjón, vefnað og annað það sem tilheyrir
vinnu með fatnað, búninga og textílefni.
Umsjónarmaður: Katrín María Káradóttir, s. 545 2227
Hljóðupptökuver - Sölvhólsgötu 13
Í húsnæði tónlistardeildar á Sölvhólsgötunni er staðsett hljóðupptökuver sem rekið er af tónlistardeild. Hljóðverið er aðallega hugsað til upptöku á tónlistarflutningi. Til þess að vinna í hljóðverinu þurfa nemendur að hafa lokið tilteknu námskeiði og hafa kunnáttu í notkun þeirra tækja og hugbúnaðar sem þar eru.
Umsjónarmaður: Sveinn Kjartansson, s. 552 5020