Húsnæði og aðstaða
Listaháskóli Íslands starfar í þremur byggingum. Í Skipholti 1, Sölvhólsgötu 13 og við Laugarnesveg 91. Samtals er húsnæði skólans 17.000 fm². Í öllum þremur byggingum er lesaðstaða og aðstaða til hópavinnu, auk þess sem tölvur fyrir nemendur eru til staðar. Hver bygging hefur sérstaka aðstöðu fyrir þá starfsemi sem þar fer fram, í Laugarnesi og Skipholti eru nemendasvæði fyrir nemendur hönnunar- og arkitektúrdeildar og myndlistardeildar og kennaranám hefur einnig sitt svæði. Í Sölvhólsgötu eru æfingaherbergi fyrir nemendur tónlistardeildar og tónlistarsalur. Danssalur, leikfimisalur og æfingasalir fyrir nemendur leiklistar- og dansdeildar eru í Sölvhólsgötu.
Umsjónarmaður húseigna er: Ólafur Hallgrímsson, s. 896 1470
Sérstakt tölvulásakerfi gefur aðgangskóða að húsnæði skólans eftir lokun virka daga og um helgar.
Opnunartími skólans
Hús skólans eru opin frá kl. 8.00-16.00 alla skóladaga. Frá kl. 16.00-01.00 mánudaga til föstudaga og frá kl. 8.00-01.00 laugardaga og sunnudaga er tölvulásakerfi virkt.
Nemendur fá afhenta lykla að útidyrum skólans hjá þjónustufulltrúa og aðgangskóða að dyrum innan skólans hjá tölvudeild. Nemendum ber að skila lykli að námi loknu. Glatist lykill kostar 3.000. kr. að fá hann endurnýjaðan.
Umgengni
Listaháskólinn gerir þá kröfu til nemenda sinna að þeir gangi vel um húsnæði og tækjakost skólans. Í því sambandi er rétt að benda á eftirfarandi atriði:
- Reykingar eru stranglega bannaðar í húsnæði skólans. Það sama á við um neyslu hvers konar annarra vímuefna.
- Reykingar eru stranglega bannaðar í húsnæði skólans. Það sama á við um neyslu hvers konar annarra vímuefna.
- Óheimilt er að neyta matar inni í kennslurýmum skólans.
- Nemendum ber að ganga vel um húsnæði skólans og taka virkan þátt í hreingerningadögum sem boðað er til í lok hverrar kennslulotu. Þá er ætlast til að þeir fjarlægi verk sín og persónulega muni í lok annar. Athygli er vakin á því að þeim munum sem eftir verða á vinnusvæðum skólans verður hent.
- Nemendum og starfsmönnum ber að loka gluggum og dyrum, skrúfa fyrir krana osfrv. þegar þeir yfirgefa húsnæði skólans.
- Ef húsmunir eða tæki skemmast eða glatast ber að tilkynna þjónustufulltrúa það þegar í stað.
- Nemendur eru minntir á að gæta vel að lyklum og lykilorðum. Óheimilt er að lána lykla, og ber nemendum skylda til að tilkynna glataða lykla þegar í stað.
- Nemendur eru eindregið hvattir til að tilkynna um grunsamlegar mannaferðir innan skólans hvenær sem er sólarhrings.











