Námsráðgjöf
Námsráðgjöf hefur það að markmiði að efla vitund einstaklinga um viðhorf sín, áhuga og hæfileika þannig að þeir fái notið sín í námi. Námsráðgjafi er trúnaðarmaður nemenda og þar gefst nemendum kostur á að bera upp erindi sín. Námsráðgjafi sér einnig um aðstoðarkerfi fyrir nemendur sem þurfa á sértækum úrræðum að halda í lokaprófum svo sem vegna sértækra námsörðugleika eins og lesblindu eða annarra hamlana. Það er á ábyrgð nemendanna sjálfra að upplýsa námsráðgjafa um hamlanir sínar þegar þeir hefja nám í Listaháskólanum.
Námsráðgjafi er: Ingibjörg Kristinsdóttir, s: 552 4000
Námsráðgjafi er með viðtalstíma fyrir nemendur og skólans og ekki þarf að bóka tíma fyrirfram. Til að bóka viðtal á öðrum tíma er hægt að senda tölvupóst til námsráðgjafa eða hringja.
Viðtalstímar
Sölvhólsgata: mánudaga kl. 10.00-12.00
Skipholt: miðvikudaga kl. 10.00-12.00
Laugarnes: miðvikudaga kl. 13.00-15.00











