Háskólaskrifstofa
Háskólaskrifstofan er staðsett á fyrstu hæð í Skipholti 1, en jafnframt tilheyra deildarskrifstofur henni. Deildarskrifstofa hönnunar- og arkitektúrdeildar er til húsa á fjórðu hæð í Skipholti 1, deildarskrifstofa myndlistardeildar er í Laugarnesi, og á Sölvhólsgötu eru leiklistar og dans- og tónlistardeildir með skrifstofu. Á skrifstofunum eru nemendum og kennurum veittar upplýsingar og þjónustu af ýmsu tagi. Þar er umsjón með nemendabókhaldi, úthlutun kennslurýma, stundaskrám, kennsluskrám og fleira. Á deildarskrifstofum skólans geta nemendur nálgast vottorð um skólavist, námsferil og fleira. Þar skrá þeir sig úr námskeiðum, skila verkefnum og sækja yfirfarin verkefni og þaðan er útláni á tækjakosti deildarinnar stýrt.
Í nemendabókhaldi er haldið utan um skráningu á námi allra nemenda svo sem námsferlum, skráningu í og úr námskeiðum, einkunnaskráningu og útskrift. MySchool kennslukerfið er notað sem nemendaskráningarkerfi og innri vefur Listaháskólans. Kerfið veitir allar helstu upplýsingar um námið sem nemandi þarf á að halda svo sem stundaskrár, einkunnir, verkefnaskil, kennsluefni sem tengist hverju námskeiði fyrir sig og tilkynningar.
Forstöðumaður háskólaskrifstofu er: Björg Birgisdóttir, s: 545 2208
Háskólaskrifstofa
Skipholti 1,
105 Reykjavík
sími: +354 552 4000
fax: +354 562 3629
netfang: lhi@lhi.is
Opin frá kl. 9.00-15.00 alla virka daga.











