Umsóknir

Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun og grunnþekkingu á viðkomandi sviði. Rétt til að sækja um nám hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi, sambærilegu námi eða námi af listnámsbrautum framhaldsskólanna.

Umsækjendum er bent á að þeir geti sótt um nám á fleiri en einni braut við skólann. Ef sótt er um nám á fleiri en einni braut þá þarf að skila umsóknargögnum á hverja braut.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í nám á flestar brautir Listaháskólans. Umsóknarfrestur fyrir bakkalárnám rennur út  23. mars og fyrir meistaranám í listkennsludeild 11. maí 2012. Umsóknarfrestur um meistaranám á öðrum brautum verður auglýstur síðar.

Umsóknir
Grunnumsókn um nám í Listaháskóla Íslands er í stöðluðu rafrænu formi. Önnur umsóknargögn og umsóknarferli eru hins vegar mismunandi eftir deildum skólans. Það er því mjög mikilvægt að umsækjendur lesi upplýsingar um umsóknarferli og fylgigögn frá viðkomandi deild nákvæmlega og fylgi þeim leiðbeiningum sem þar er að finna.

Til að umsókn sé fullgild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn  (sjá viðkomandi deild)
  • Prentuð og undirrituð umsókn
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Fylgigögn sem viðkomandi deild óskar eftir

Þegar umsækjendur hafa fyllt út rafræna eyðublaðið, þá þarf að PRENTA umsóknareyðublaðið út, undirrita það og senda á skrifstofu viðkomandi deildar ásamt öðrum umsóknargögnum sem viðkomandi deild óskar eftir.

Heimilisföng deildarskrifstofa

Skrifstofa hönnunar- og arkitektúrdeildar
Skipholt 1, 105 Reykjavik
Skrifstofa leiklistar- og dansdeildar
Sölvhólsgata 13, 101 Reykjavík
Skrifstofa listkennsludeildar
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Skrifstofa myndlistardeildar
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Skrifstofa tónlistardeildar
Sölvhólsgata 13, 101 Reykjavík

Undanþágur vegna inntöku

Skólagjöld