Hönnunar-og arkitektúrdeild
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hönnunar- og arkitektúrdeild. Umsóknarfrestur um nám til BA prófs fyrir skólaárið 2012-2013 er 23. mars 2012.
Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun, verkvit og grunnþekkingu í listum.
Mikilvægar dagsetningar
| Frestur til að skila inn umsóknum | 23. mars 2012 til kl. 16.00 |
| Síðasti dagur póststimpils með innsendum umsóknum | 23. mars 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | 23.maí 2012 |
| Sækja skal innsend verk | í júní 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2011 |
Til að umsókn sé fullgild í hönnunar- og arkitektúrdeild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:
- Rafræn umsókn (sjá viðkomandi deild)
- Prentuð og undirrituð umsókn
- Staðfest afrit af prófskírteinum
- Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda
Rafræn umsókn í hönnunar- og arkitektúrdeild
Inntaka
Við inntöku í hönnunar- og arkitektúrdeild er skipuð sérstök inntökunefnd fyrir hverja námsbraut. Nefndin er skipuð þrem fagaðilum sem velja nemendur úr hópi umsækjenda. Valið byggir á mati á innsendum verkum og viðtölum. Umsækjendur geta átt von á því að þurfa að mæta í verklegt próf. Sótt er um inngöngu í hverja námsbraut sérstaklega. Til að öðlast inngöngu í námið þurfa umsækjendur að hafa stúdentspróf og hafa lagt fram möppu með vinnu sinni. Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt undirbúningsnám frá hönnunar- eða myndlistardeildum framhaldsskólanna, en þó er slíkt ekki skilyrði.
Skrifleg umsókn ásamt möppu (portfolio) með sýnishornum af verkum umsækjanda þurfa að berast Listaháskóla Íslands samkvæmt auglýstum fresti. Öll gögn sem fylgja umsókninni, s.s. einkunnir og meðmæli skulu vera staðfest afrit. Umsóknir sem sendar eru í pósti skulu póstlagðar eigi síðar en auglýstur frestur rennur út. Möppur skulu sóttar aftur á skrifstofu skólans í Skipholti 1 innan tilgreinds tímaramma. Ósóttar möppur verða ekki geymdar og áskilur skólinn sér rétt til að eyða þeim. Mikilvægt er að kynna sér vel inntökuferlið.
Inntökuferlið er í eftirfarandi þrepum:
1. Eftir að umsóknir hafa verið metnar með tilliti til almennra og sérstakra inntökuskilyrða (sbr. uppl. fyrir umsækjendur) fer hver inntökunefnd yfir innsend verk. Mælikvarðarnir sem gengið er út frá eru fagleg kunnátta og listrænt gildi. Sérstök áhersla er lögð á að meta þau verk umsækjenda sem þeir hafa unnið sjálfstætt og eftir eigin forsendum. Umsækjendur sem standast mat inntökunefndar komast í úrtakshóp.
2. Þeim sem komast í úrtakshóp er boðið í viðtöl. Viðtalið hefur þann tilgang að kanna almennan áhuga umsækjenda á tilvonandi námi, afstöðu þeirra og viðhorf til hönnunar- og arkitektúrs, skilning þeirra á hönnunarheiminum og hugmyndir að baki verkum þeirra. Umsækjandi má gera ráð fyrir því að þurfa að tjá sig um verk þau sem hann hefur sent inn, og má gera ráð fyrir því að viðtöl gætu farið fram á ensku.
3. Loks er inntökunefnd heimilt að bjóða umsækjendum að þreyta inntökupróf ef þess er talin þörf. Prófið er í tveimur áföngum: þekkingarpróf og verkefni. Með þekkingarprófinu, sem er í formi krossaprófs, er reynt að kanna almenna þekkingu umsækjandans á listum og samhengi þeirra. Verkefnið felur í sér úrlausnir sem ætlað er að sýna listræna hugsun umsækjandans.
4. Tilkynningar um inntöku verða sendar út í maí 2011. Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta á skrifstofu deildarinnar fyrir maílok hvort þeir hyggist taka því og greiða staðfestingargjald. Gjaldið er óafturkræft en gengur upp í skólagjöld mæti viðkomandi í námið um haustið.
5. Öllum umsækjendum verður sent skriflegt svar við umsóknum. Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og henni er ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.
Mappan
Umsækjendur í hönnunar og arkitektúrdeild skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu (portfólíó), í PAPPÍRSFORMI, sem þeir leggja fram með formlegri umsókn. Þ.m.t. sýnishorn úr hreyfimyndum; til að sýna slík verk á að gera “storyboard” með “still”-myndum úr verkinu og setja verkið með á rafrænu eða vísa á það. Það er ekki leyfilegt að skila aðeins rafrænni möppu. Ekki er tekið við geisladiskum, minniskubbum né er hægt að vísa í heimasíður, nema sem ítarefni. Verkin eiga að endurspegla persónuleika nemandans, varpa ljósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum. Ekki er nauðsynlegt að öll verkin séu fullgerð eða þau útfærð til hins ítrasta. Þvert á móti er mikilvægt að þar sé einnig að finna hvers konar skissur og teikningar, ljósmyndir, texta og jafnvel hljóðverk. Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati nemandans sjálfs getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill ná fram með vinnu sinni á viðkomandi sviði og getur vitnað til um hvort hann hefur hæfileika til að koma því á framfæri við aðra.
Umsækjandi sem sækir um skólavist við fleiri en eina námsbraut innan deildarinnar skal leggja fram möppu með hverri umsókn (þ.e. sérstök mappa þarf að fylgja hverri umsókn). Möppur skulu vera nafnlausar (þær fá umsóknarnúmer í móttöku).
Rafræn umsókn í hönnunar- og arkitektúrdeild
Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Hönnunar- og arkitektúrdeild











