Leiklistar- og dansdeild
Í leiklistar- og dansdeild eru nemendur teknir inn annað hvert ár á námsbrautirnar leikarabraut, dansbraut, og fræði og framkvæmd.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fræði og framkvæmd og samtímadans í leiklistar- og dansdeild. Umsóknarfrestur um nám til BA prófs fyrir skólaárið 2012-2013 er 23. mars 2012. Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi á miðnætti þann dag. Upplýsingar um inntökuferli má finna hér neðar á síðunni.
Umsóknarfrestur um leikaranám fyrir skólaárið 2012-2013 er útrunnin.
Rafræn umsókn í leiklistar- og dansdeild
Dansbraut
Inntökuferli
Skilyrði er að nemendur hafi lokið stúdentsprófi og framhaldsstigi í dansi eða sambærilegu námi. Inntökunefnd velur úr hópi umsækjenda, en auk mats á umsóknum með tilliti til formlegra skilyrða byggir valið á verklegu inntökuprófi og viðtölum:
1. þrep, sem allir þreyta. Úr því er valið í:
2. þrep, sem samanstendur af verklegum þáttum, viðtali og mati á möppu.
Að því loknu fá allt að 8 einstaklingar boð um skólavist.
Inntökupróf fyrir Samtímadansbraut:
10. apríl 2012
11. apríl 2012
Umsóknin
Umsækjendur um dansnámið skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu (portfólíó) sem þeir senda inn með umsókn um námið. Mappan skal innihalda ekki færri en fimm sýnishorn og ekki fleiri en tíu, sem eiga að endurspegla persónuleika nemandans, varpa Ijósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum. Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati nemandans getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill ná fram með vinnu sinni á viðkomandi sviði og getur vitnað til um hvort hann hefur hæfileika til að koma því á framfæri við aðra.
Námið
Námið miðar að því að skila af sér vel þjálfuðum, skapandi og forvitnum danslistamönnum sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi huga og eru tilbúnir að takast á við starfið í fjölbreyttum og síbreytilegum heimi samtímadansins. Nemendur útskrifast með B.A. gráðu.
Á fyrsta ári er opnað fyrir breiðan skilning á hreyfingu og hugmyndum um hreyfimöguleika líkamans. Lögð er áhersla á að veita yfirsýn yfir þær kenningar, forsendur, hugtök og aðferðir sem eru grundvöllur áframhaldandi náms. Á haustönn eru línurnar lagðar fyrir komandi ár með fjölbreyttum tæknilegum grunni og stoðþjálfun auk þess sem skilningur í tækniþjálfun er tengdur við listrænar hugmyndir og spuna. Hugmyndaheimurinn er víkkaður og hvatt til sjálfstæðrar skoðanamyndunar um hlutverk dansins í samtímanum. Á vorönn er byrjað er að víkka út tjáningarmöguleika dansarans og einnig er samband tónlistar og dans skoðað í gegnum mismunandi líkamlegar nálgunarleiðir.
Á öðru ári er haldið áfram að byggja upp og dýpka danstæknilega færni nemandans í listrænu samhengi og aukin áhersla er lögð á sköpunarkraft hans. Tjáningarmöguleikum dansarans fjölgar og þanþol hans er aukið. Á haustönn er unnið að því að tengja saman leiðir leiklistar og dans en á vorönn er áhersla á danssmíði og nýmiðla. Nemendur fá þjálfun í að beita helstu greiningartækjum fagsins og nýta þann skilning í framsetningu verkefna. Unnið er að frekari samþættingu fræða, tækni og listrænnar vinnu.
Þriðja árið er ár sjálfstæðis og úrvinnslu. Hér takast nemendur á við verkefni sem reyna á færni þeirra í skapandi og fræðilegum vinnubrögðum, skilning og yfirsýn. Á haustönn velur nemandinn sér starfsþjálfun eða skiptinám sem styður við þróun nemandans innan hans eigin áhugasviðs. Á vorönn fær nemandinn aukið sjálfstæði og ábyrgð í listrænu ferli og aukin áhersla er lögð á gagnrýna sýn hans á eigin vinnubrögð og aðferðir. Í lok ársins skal nemandinn vera fær um að takast á hendur rannsóknarvinnu er snýr að starfi dansarans. Nemandinn fær innsýn í atvinnuumhverfi dansarans með því að: öðlast sýningareynslu í nemendaleikhúsi, vinna með atvinnufólki í faginu, vinna fullbúna sýningu, bera ábyrgð á listrænu ferli og vinna úr opinberri gagnrýni auk þess sem þeir huga að öðrum þáttum er snerta rekstur atvinnudanshóps.
Nánari upplýsingar: Sveinbjörg Þórhallsdóttir, fagstjóri
Fræði og framkvæmd
Inntökuferli
Skilyrði er að nemendur hafi stúdentspróf eða sambærilega menntun. Þeir sem ekki hafa stúdentspróf þurfa að tilgreina það nám sem þeir telja sambærilegt. Annað listnám en leiklistarnám er tekið til greina þegar umsókn er metin. Sérskipuð inntökunefnd velur umsækjendur úr hópnum og er þeim boðið í viðtöl og inntökupróf. Prófin samanstanda af verklegum og skriflegum æfingum. Að þessu loknu fá allt að 10 einstaklingar boð um skólavist.
Inntökupróf fyrir Fræði og framkvæmd:
19. apríl 2012
20. apríl 2012
21. apríl 2012
22. apríl 2012
Umsóknin
Umsækjendur í Fræði og framkvæmd skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman i möppu (portfólíó) sem þeir senda inn með umsókn um námið. Mappan skal innihalda ekki fleiri en fimm sýnishorn, sem eiga að endurspegla persónuleika nemandans, varpa ljósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum. Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati nemandans sjálfs getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill ná fram með vinnu sinni á viðkomandi sviði og getur vitnað til um hvort hann hefur hæfileika til að koma því á framfæri við aðra. Sem dæmi um innihald möppunar eru: ritgerðir, ljóð, sögur, stuttmyndir, leik- eða kvikmyndahandrit og upptökur af verkum.
Námið
Í náminu, sem er jöfnum höndum fræðilegt og verklegt er lögð áhersla á leiklist í sem víðustum skilningi og er námið hugsað sem vettvangur fyrir bæði fræðilegar og listrænar rannsóknir á leiklist. Námið snýst um sögu, eðli, hlutverk og mörk leiklistarinnar, tungumál hennar og snertifleti við aðrar listgreinar. Fræði og framkvæmd býr nemendur undir störf eða framhaldsnám í leiklist með því að auka sérþekkingu þeirra og hvetja til frumsköpunar. Námsbrautinni er ætlað að renna stoðum undir gagnrýna sýn nemandans á listgreinina, umhverfi sitt og eigin verk. Námið er ekki ætlað þeim sem vilja læra til leikara.
Á fyrsta ári er lögð megináhersla á að byggja upp fræðilegan grunn. Á haustmisseri er leitast við að veita inngang inn í námið, helstu aðferðir og kenningar. Grundvallarspurningum um form, hefð og aðferðum velt upp og nemendum kynntar helstu kenningar, bæði sem snerta leiklist og list leikarans, aðrar tegundir af sviðslistum og eins helstu kenningar í hugmyndasögu seinni hluta tuttugustu aldar og samtímans. Vormisseri beinir sjónum að einstökum þáttum sviðslistanna, svo sem texta og líkama og hvernig þessir þættir vinna saman og er víxlverkun þeirra rannsökuð, bæði með fræðilegum/sögulegum athugunum og verklegum æfingum. Á öðru ári er eykst áhersla á skapandi vinnu út frá þeim kenningum og aðferðum sem kenndar hafa verið á 1. ári. Þriðja árið hefst á einnar annar námsdvöl erlendis, en á vormisseri gefst aukið tækifæri til sérhæfingar.
Nemendur útskrifast með B.A.gráðu. Námið veitir engin starfsréttindi, sambærilega leikaranámi, nemendur útskrifast ekki sem leikstjórar eða dramatúrgar eða slíkt, en námið veitir góðan grunn til frekara náms í þeim fögum, sem og góðan undirbúning til að kljást við leikslistarformið á ýms-um sviðum mannlífsins. Þegar litið er til skóla erlendis sem kenna svipað nám, þá opnar það möguleika á að vinna m.a. innan leikhúss eða fjölmiðla - sem leikstjórar, höfundar, dramatúrgar, að framleiðslu leikhúss og sjónvarps, sem þáttastjórnendur, að menningar- og viðburðastjórnun, sem kennarar, gagnrýnendur, blaðamenn, í útvarpi, útgáfu, við rannsóknir og greinaskrif, svo fátt eitt sé nefnt.
Nánari upplýsingar: Magnús Þór Þorbergsson, lektor í leiklistarfræðum og fagstjóri
Leikarabraut
Inntökuferli
Við inntöku í leikaranámið er skipuð sérstök inntökunefnd sem velur nemendur úr hópi umsækjenda, valið byggir á inntökuprófi og viðtölum. Ferlið er eftirfarandi:
•Mat á umsóknum með tilliti til formlegra skilyrða
•Inntökupróf 1. þrep (skipt í hópa, 1/2 dagur hver hópur)
•Inntökupróf 2. þrep úrtakshópar (1/2 dagur hver hópur)
•Inntökupróf 3. þrep, úrtakshópur (3 dagar)
Umsækjendur skulu undirbúa 3 verkefni sem samanlagt mega ekki taka meira en 6 mínútur í flutningi. Tvö þeirra skulu vera eintöl. Annað eintalið skal vera í bundnu máli (leiktexti, ekki ljóð). Hitt eintalið skal vera leiktexti í óbundnu máli. Þriðja verkefnið skal vera eintal, atriði eða gjörningur, sem umsækjandi telur að endurspegli hann og hans hugðarefni. Þessi þáttur má taka það form sem umsækjandi telur við hæfi. Við undirbúning er umsækjendum bent á að velta fyrir sér þeim þáttum sem dómnefnd hefur til viðmiðunar um mat á framlagi þeirra. Áhersla er lögð á að verkefnin séu ólík.
Prófið samanstendur af mörgum ólíkum þáttum t.a.m dans- og líkamsæfingum og er mælst er til að umsækjendur komi í hentugum fatnaði.
Að inntökuferli loknu er allt að 10 einstaklingum boðin skólavist.
Námið
Nám á leikarabraut er samfellt nám á 3. og 4. háskólastigi sem lýkur með meistaragráðu í leiklist. Námið er tvískipt: þriggja ára nám, 180 einingar, á bakkalárstigi sem lýkur með BA gráðu, og eins árs (12 mánaða) nám, 90 einingar, á meistarastigi sem lýkur með MA gráðu. Nemendur, sem óska eftir að hætta náminu að fenginni BA gráðu verða að sækja um það sérstaklega.
Fyrstu tvö árin í leikaranámi fær nemandinn góða undirstöðu í tæknigreinum. Kennd er raddbeiting, söngur, líkamsþjálfun og leiktúlkun, auk leiklistarsögu. Kenningar sem stuðst er við í leiktúlkun taka mið af fræðum Konstantíns Stanislavski. Sameiginleg námskeið allra brauta deildarinnar eru mikilvægur þáttur námsins á þessu tímabili.
Á þriðja ári er leiktúlkunarkennsla í brennidepli ásamt með fræðinámskeiðum. Lögð er áhersla á efla skilning nemandans á ólíkum aðferðum leikhússins. Einstaklingsverkefni, samsettar aðferðir (’devised’), kvikmyndavinna og dansleikhús eru meðal þeirra verkefna sem boðið er upp á. Þriðja árinu lýkur með uppsetningu á leikverki.
Tilgangur meistaranáms er að dýpka skilning og þekkingu nemandans á viðfangsefnum leikarans og þannig undirbúa hann fyrir störf sem atvinnumaður í leiklist. Með fjölbreyttri og markvissri þjálfun fær hann innsýn í vinnuaðferðir samtímaleikhússins og þekkingu á því starfsumhverfi er bíður hans að námi loknu. Námið fer fram í hóp- og einkatímum. Námið er þannig skipulagt að því er skipt í fjórar samfelldar lotur. Í hverri lotu er tekið fyrir ákveðið svið í þjálfun leikarans, s.s. raddbeiting og textavinna, kvikmyndir og leikhús, samsettar aðferðir, og fullbúin uppsetning. Námið er í nánu samstarfi við atvinnuleikhús og aðrar listastofnanir.
Nánari upplýsingar: Stefán Jónsson, fagstjóri
Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Leiklistar- og dansdeild











