Listkennsludeild
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á listkennslubraut. Umsóknarfrestur til að sækja um nám fyrir skólaárið 2012-2013 er 11.maí 2012.
Í listkennsludeild eru tvær námsleiðir
Tveggja ára, 120 eininga meistarnám í listkennslu og eins árs, 60 eininga diplómanám til kennsluréttinda á framhaldsskólastigi.
Mikilvægar dagsetningar
| Frestur til að skila inn umsóknum | 11. maí 2012 til kl. 16.00 |
| Síðasti dagur póststimpils með innsendum umsóknum | 11. maí 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | 8. júní 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2012 |
Til að umsókn sé fullgild í listkennsludeild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:
- Rafræn umsókn (sjá viðkomandi deild)
- Prentuð og undirrituð umsókn
- Staðfest afrit af prófskírteinum
- Greinargerð um ástæður umsóknar, ferilskrá yfir listræn störf og umsagnir tveggja meðmælenda
Rafræn umsókn í listkennsludeild
Listkennsla / Kennsla, miðlun, verkefnastjórn
Námið miðar að því að þjálfa listafólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi, og leiða listverkefni bæði innan skólakerfisins og utan þess. Listkennslunámið er byggt á námskeiðum í kennslu-, uppeldis- og sálarfræði, heimspeki og félagsfræði, samhliða þjálfun í kennslu og miðlun listgreinar á vettvangi.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi kennarans, bæði fræðilega og á vettvangi. Þeir geti skipulagt nám og námsþætti út frá námskrám grunn- og framhaldsskóla og valið námsgögn, námsaðferðir og matsaðferðir við hæfi. Kennsla og miðlun eru einnig skoðuð í víðara samhengi og nemendur hvattir til að setja fram eigin sýn og hugmyndir um listnám og námsframboð í samfélaginu.
Skipulag námsins miðar að því að þjálfa leiðtoga í listgreinakennslu þar sem listafólk úr ýmsum listgreinum vinnur saman og samhliða að kennslufræðilegum úrlausnarefnum. Þó hver nemandi einbeiti sér að sinni sérgrein á sér stað stöðugt samtal milli listgreinanna, sem opnar dyr fyrir samvinnu þeirra á milli og þar með fyrir nýjum möguleikum í listkennslu.
Markmið
Markmið með meistaranámi í listkennslu er í grunnatriðum þríþætt:
- að veita afbragðsmenntun fyrir listgreinakennara þar sem tekið er mið af forsendum og vinnubrögðum listgreina og áhersla lögð á fagmennsku og framsýni í starfi.
- að mæta brýnni þörf fyrir öfluga og vel menntaða listgreinakennara á öllum skólastigum og hvetja til samvinnu og umræðu um listgreinakennslu.
- að hafa frumkvæði og að efla samspil fræða og sköpunar í gegnum rannsóknir á sviði listnáms og listgreinakennslu.
Inntökuskilyrði
Til að geta sótt um meistaranám í listkennslu þurfa umsækjendur hafa lokið bakkalárgráðu eða sambærilegu 180 eininga háskólanámi í myndlist, hönnun, arkitektúr, leiklist, dansi eða tónlist frá viðurkenndum háskóla.
Umsækjendur með lokapróf frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Leiklistarskóla Íslands og frá kennaradeildum og tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík eru metnir með sambærilega menntun og bakkalármenntun.
Sextíu eininga kennsluréttindanám er eingöngu í boði fyrir þá sem hafa meistarapróf í sinni listgrein (að lágmarki 210 einingum í faggrein) og veitir aðeins réttindi á framhaldsskólastigi.
Prófgráða
Meistaranámi í listkennslu, 120 einingum lýkur annað hvort með prófgráðunum MA í listkennslu eða M.Art.Ed. Kennsluréttindi í listkennslu fyrir framhaldsskóla, 60 einingum, lýkur með diploma í listkennslu.
Deildarforseti: Kristín Valsdóttir
Deildarfulltrúi: Svanborg Matthíasdóttir
Umsókn og inntökuferli
Umsókn þurfa að fylgja staðfest afrit prófskírteina, greinagerð um ástæður umsóknar, ferilskrá yfir listræn störf og umsagnir tveggja meðmælenda.
Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Listkennludeild
Reglur um inntöku í listkennsludeild











