Myndlistardeild

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á  myndlistarbraut. Umsóknarfrestur  til að sækja um BA nám fyrir skólaárið 2012-2013 er 23. mars 2012.

Listaháskóli Íslands sækist eftir hæfileikamiklum og hugmyndaríkum einstaklingum með góða almenna undirstöðumenntun og grunnþekkingu í listum.

Mikilvægar dagsetningar

Frestur til að skila inn umsóknum 23. mars 2012 til kl. 16.00
Viðtöl við umsækjendur 7.-9. maí 2012
Tilkynningar um inntöku póstlagðar 23. maí 2012
Upphaf haustmisseris 20. ágúst 2012

Til að umsókn sé fullgild í myndlistardeild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:

  • Rafræn umsókn  (sjá viðkomandi deild)
  • Prentuð og undirrituð umsókn
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda

Rafræn umsókn í myndlistardeild

Inntaka
Í inntökunefnd sitja þrír fastráðnir kennarar deildarinnar, einn utanaðkomandi myndlistarmaður eða listfræðingur auk deildarforseta, sem er formaður. Inntökunefndin hefur það hlutverk að velja úr hópi fullgildra umsókna 26 umsækjendur sem hún telur hafa forsendur til að stunda nám við myndlistardeild og standast þær kröfur sem gerðar eru til undirbúnings listnámi á háskólastigi. Inntökunefndin hefur að leiðarljósi að viðkomandi geti sem best nýtt sér það nám sem í boði er í deildinni og því skal ekki túlka mat hennar sem einhlítan úrskurð um hæfni umsækjandans til listsköpunar yfirleitt. Til að öðlast inngöngu í námið þurfa umsækjendur að hafa stúdentspróf og hafa lagt fram möppu með vinnu sinni. Æskilegt er að umsækjendur hafi sótt undirbúningsnám frá hönnunar- eða myndlistardeildum framhaldsskólanna, en þó er slíkt ekki skilyrði. Bréf með lokaniðurstöðum inntökunefndar verða send í lok maímánaðar til þeirra umsækjenda sem komust í úrtakshóp / viðtal. Umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta komu sína í skólann á skrifstofu deildarinnar í byrjun júní 2012 með því að greiða skráningargjald. Það gjald er óafturkræft.

Skrifleg umsókn ásamt möppu (portfolio) með sýnishornum af verkum umsækjanda þurfa að berast Listaháskóla Íslands samkvæmt auglýstum fresti. Öll gögn sem fylgja umsókninni, s.s. einkunnir og meðmæli skulu vera staðfest afrit. Möppur skulu sóttar aftur í júní. Ósóttar möppur verða ekki geymdar og áskilur skólinn sér rétt til að eyða þeim. Ef óskað er eftir að mappan verði send til baka með pósti skal það koma fram á fylgiblaði. Endursending er á kostnað umsækjanda.

Mikilvægt er að kynna sér vel inntökuferlið.

Inntökuferlið er í eftirfarandi þrepum:

1. Umsækjandi  sækir um skólavist á vef skólans og sendir til deildarinnar útprentaða og undirritaða umsókn ásamt fylgiskjölum og möppu (sem merkt er með umsóknarnúmeri) með myndum af verkum sínum.

2. Umsóknir eru metnar með tilliti til almennra og sérstakra inntökuskilyrða og  inntökunefnd fer yfir innsend verk. Mælikvarðarnir sem gengið er út frá eru fagleg kunnátta og listrænt gildi. Sérstök áhersla er lögð á að meta þau verk umsækjenda sem þeir hafa unnið sjálfstætt og eftir eigin forsendum. Umsækjendur sem standast mat inntökunefndar komast í úrtakshóp.

3. Þeim sem komast í úrtakshóp er boðið í viðtal. Viðtalið hefur þann tilgang að kanna almennan áhuga umsækjenda á tilvonandi námi, afstöðu þeirra og viðhorf til myndlistar, skilning þeirra á myndlistarheiminum og hugmyndir að baki verkum þeirra. Í viðtalið ber umsækjendum að koma með eitt til tvö sýnishorn af fullgerðum verkum sínum ásamt skissubók. Umsækjandi má gera ráð fyrir því að þurfa að tjá sig um verk þau sem hann hefur sent inn.

4. Tilkynningar um inntöku verða sendar út í lok maí 2012. Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta innan 10 daga frá dagsetningu bréfsins hvort þeir taki boðinu með því að greiða staðfestingargjald. Gjaldið er óafturkræft en gengur upp í skólagjöld.

5. Öllum umsækjendum verður sent skriflegt svar við umsóknum. Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og henni er ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.

Mappan
Umsækjendur í myndlistardeild skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu (portfólíó), í PAPPÍRSFORMI, sem þeir leggja fram með formlegri umsókn.

Mappan skal vera í stærð A4 eða A3. Hún skal innihalda allt að 30 greinargóðar ljósmyndir, tölvuprent eða annarskonar afrit af verkum umsækjanda. Með þeim skal fylgja greinargóð lýsing þar sem fram koma upplýsingar eins og: titill, stærð, efni, ártal o.s.frv. Einnig mega fylgja DVD diskar með vídeó- eða hljóðverkum.

Möppunni má deila í undirstöðugreinar (Verk sem sýna almenna teiknikunnáttu, myndbyggingu og litanotkun. Þrívíddarverk sem sýna myndbyggingu, formfræði og efnisnotkun) og sjálfstæð verk (Myndverk, hljóðverk, texti, hönnun o.s.frv., unnin í hvaða efni sem er, sem sýna  persónulega sköpun umsækjanda. Hér er átt við verk sem umsækjandi hefur gert út frá eigin forsendum). Verkin þurfa ekki að vera fullgerð eða útfærð til hins ítrasta. Þvert á móti er mikilvægt að þar sé einnig að finna hvers konar skissur og teikningar, ljósmyndir, texta, myndbönd og hljóðverk. Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati nemandans sjálfs getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill ná fram með myndlistarvinnu sinni i og getur vitnað til um hvort hann hefur hæfileika til að koma því á framfæri við aðra.

Mappan er metin nafnlaus en hún skal vera merkt með umsóknarnúmerinu sem umsækjandi fær þegar hann staðfestir umsókn sína a vef LHÍ.

Umsækjendur sem staddir eru erlendis eða geta ekki mætt í viðtal, þurfa að vera reiðubúnir að eiga símaviðtal við inntökunefnd.

Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Myndlistardeild

Rafræn umsókn í myndlistardeild