Tónlistardeild
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í tónlistardeild. Umsóknarfrestur til að sækja um bakkalárnám fyrir skólaárið 2012-2013 er 23. mars 2012 en fyrir meistaranám 11. maí 2012.
Almennt um tónlistardeildina
Í tónlistardeild er boðið sérhæft tónlistarnám í hljóðfæraleik og einsöng til BMus gráðu og almennt tónlistarnám til BA gráðu, þar sem nemendur geta valið um að sérhæfa sig kirkjutónlist, Mennt og miðlun og í tónsmíðum fyrir ýmsa miðla.
Mikilvægar dagsetningar
| Diplóma og bakkalárnám | |
| Frestur til að skila inn umsóknum | 23. mars 2012 |
| Stöðupróf | 19. og 20. apríl 2012 |
| Inntökupróf og viðtöl | 19. og 20. apríl 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | í maí 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2012 |
| Meistaranám í tónsmíðum | |
| Frestur til að skila inn umsóknum | 11. maí 2012 |
| Viðtöl | í maí 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | í júní 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2012 |
| Meistaranám í Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi | |
| Frestur til að skila inn umsóknum | 11. maí 2012 |
| Viðtöl | í maí 2012 |
| Tilkynningar um inntöku póstlagðar | í júní 2012 |
| Upphaf haustmisseris | 20. ágúst 2012 |
Til að umsókn sé fullgild í tónlistardeild þurfa eftirfarandi gögn að berast Listaháskólanum:
- Rafræn umsókn (sjá viðkomandi deild)
- Prentuð og undirrituð umsókn
- Staðfest afrit af prófskírteinum
- Mappa með sýnishornum af verkum umsækjenda (á ekki við um umsækjendur í hljóðfæraleik eða söng)
Rafræn umsókn í tónlistardeild
Meistaranám í tónlist
Tónsmíðar
Í tónlistardeild er boðið upp á meistaranám í tónsmíðum. Námið er 120 einingar, að jafnaði 30 einingar á önn, og lýkur með MA gráðu í tónsmíðum. Tilgangur meistaranáms í tónlist við Listaháskóla Íslands er að auka fjölhæfni og víðsýni nemandans ásamt því að auka starfsmöguleika hans í fjölbreyttu tónlistarlífi samtímans hverju sinni. Með náminu mun nemandinn öðlast gagnrýna sýn á eigin listsköpun og auka hæfni sína til að takast á við verkefni í tengslum við aðrar listgreinar og annað menningarumhverfi.
Evrópskt meistaranám í sköpun,miðlun og frumkvöðlastarfi
Námið, sem er samvinna fimm tónlistarháskóla í Evrópu, er til tveggja ára og 120 eininga. Nemendur ljúka að jafnaði 30 einingum á önn. Náminu lýkur með MA gráðu. Á annarri önn stunda nemendur námið við einn af hinum fjórum erlendu skólunum eða fara í annað skiptinám sem hentar. Nemendur eru sjálfir ábyrgir fyrir kostnaði við skiptinámið en þeim er bent á Erasmus, Nordplus eða aðra styrkjamöguleika.
Markmiðin eru að þróa og framkvæma skapandi verkefni við mismunandi aðstæður og efla með nemendum áræði og dug til að gerast leiðtogar á sínu sviði. Nemendur fást við fjölbreytta tónsköpun og flutning, og þróa í því skyni nýjar aðferðir.
Jafnframt er boðið upp á 40 eininga diplómanám sem er ætlað nemendum sem enn stunda almennt nám á framhaldsstigi en standast kröfur Listaháskólans um kunnáttu og færni í tónlist. Þeir nemendur þurfa að hafa lokið framhaldsnámi skv. aðalnámskrá tónlistarskólanna. Þó ber að athuga, að einungis nemendur sem eru orðnir a.m.k.16 ára geta sótt um þessa námsleið.
Tónlistardeild greinist í eftirfarandi brautir
Diplóma:
Hljóðfæraleikur / söngur:
-píanó
-strengir/blásarar
-söngur
-annað
BMus gráða:
-Hljóðfæraleikur / söngur:
-píanó
-strengir/blásarar
-söngur
-annað
BA gráða:
Mennt og miðlun
Kirkjutónlist
Tónsmíðar:
-almennar tónsmíðar
-nýmiðlar
-kvikmyndatónlist
-sviðstónlist
-upptökutækni
Kjarni
Í kjarna tónlistarnáms til BA og BMus gráðu eru sameiginleg fög allra brauta. Helstu fög eru: tónfræði, tónheyrn, kórstjórn, tónlistarsaga, ritgerðaskrif, tónbókmenntir ásamt almennum kynningaráföngum um tækni í tónlist og starfsumhverfi tónlistarmanna.
Inntökuskilyrði í nám til BA eða BMus gráðu
Inntökuskilyrðin greinast í almenn og sérstök inntökuskilyrði.
a) Almenn inntökuskilyrði
Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Þeir sem ekki uppfylla þessi almennu inntökuskilyrði þurfa að sýna fram á þroska og þekkingu sem meta má til jafns við það nám sem á vantar. Greinargerð þar að lútandi skal fylgja umsókn.
b) Sérstök inntökuskilyrði
Auk hinna almennu inntökuskilyrða þurfa umsækjendur að uppfylla viðbótarkröfur um þekkingu á tónlist. Er þar er miðað við að umsækjandi hafi lokið framhaldsstigi samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskólanna eða sambærilegu námi.
Allir sem uppfylla almenn inntökuskilyrði eru boðaðir í stöðupróf í tónfræði, hljómfræði, tónlistarsögu og tónheyrn.
Inntökuferli
BMus gráða og diplóma gráða í hljóðfæraleik / söng
• Umsóknir eru metnar með tilliti til almennra skilyrða
• Stöðupróf í tónfræðigreinum
• Inntökupróf (hljóðfæra / söngpróf)
• Endanlegar niðurstöður
BA gráða í tónsmíðum, Mennt og miðlun og kirkjutónlist
• Umsóknir eru metnar með tilliti til almennra skilyrða
• Stöðupróf í tónfræðigreinum
• Inntökunefnd metur innsend verk umsækjenda
• Viðtöl
• Inntökupróf í orgelleik (á eingöngu við kirkjutónlistarbraut)
• Endanlegar niðurstöður
Upplýsingar fyrir umsækjendur til grunnnáms í hljóðfæraleik-söng 2011-2012
Upplýsingar fyrir umsækjendur í tónsmíðum, mennt og miðlun og kirkjutónlist 2011-2012
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 1. hluti - tónfræði byrjenda
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 2.hluti - hljómfræði
Sýnishorn af stöðuprófi í tónfræði, 3. hluti - tónheyrn
Inntökuskilyrði fyrir meistaranám í tónsmíðum
BA / BMus próf í tónsmíðum eða sambærilegt nám sem metið verður af inntökunefnd.
Ítarleg námstillaga þar sem fram koma markmið og rannsóknarsvið náms.
Inntökuferli
• Inntökunefnd metur innsend verk umsækjenda og námstillögu
• Viðtöl
• Endanlegar niðurstöður
Inntökuskilyrði fyrir meistaranám í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi
BA / BMus gráða í tónlist eða sambærilegt nám og reynsla
Gott vald á tónlistarflutningi sem skal sýnt í inntökuprófi
Skýr listræn sýn og metnaður auk nægrar grunnþekkingar í þeim hæfnisviðmiðum sem sett eru og metin í inntökuferlinu.
Inntökuferli
Umsóknarferlið er unnið í samvinnu við samstarfsskólana. Sérstakt umsóknareyðublað fyrir námið er að finna í MySchool
1. umferð:
- Umsækjandi sækir um rafrænt á lhi.is og sendir útprentað og undirritað eintak af inn ásamt fylgigögnum.
- Skilað er inn útfylltri umsókn á ensku sem sótt er á síðu Joint Music Master
- Skilað er inn námsáætlun og bréfi sem lýsir áhugasviði og áformum varðandi framtíðarferil í tónsköpun og miðlun.
- Skilað er inn upplýsingum um nám og starfsferil auk DVD upptöku af flutningi umsækjanda.
LHÍ velur þá sem komast í aðra umferð. Umsækjandi er beðinn um að velja tvo af hinum samstarfsskólunum til að dvelja á annarri námsönninni, einn sem fyrsta val og annan til vara. Ekki verður þó hægt að ganga frá því endanlega á þessu stigi. Eftir að 2. umferð lýkur verður ljóst hvernig nemendurnir raðast niður á skólana á annarri önn.
2. umferð:
- Tónlistarflutningur.
(tónheyrnarkönnun sleppt)
- Kynning umsækjandans á námsáætlun og áformum um verkefni.
- Umræður um annað kynningarefni, m.a. mynddisk, sem umsækjandi lagði fram.
- Smiðja, eða “Workshop” með öðrum umsækjendum.
-Athugið að viðtalið fer fram á ensku þar sem inntökunefndina skipa að hluta aðilar úr samstarfsskólunum
Nánari upplýsingar um nám og umsóknir í tónlistardeild veitir Sóley Björt Guðmundsdóttir, deildarfulltrúi tónlistardeildar
Nánari upplýsingar um nám við deildina er að finna á síðu deildar - Tónlistardeild











