Undanþágur

Þeir sem ekki uppfylla almennar kröfur um stúdentspróf, jafngilt próf eða sambærilegt nám koma þá aðeins til greina, að þeir geti sýnt fram á einstaka, óvenjulega hæfileika á því sviði sem þeir sækja um og hafa að baki annað nám eða störf sem að mati viðkomandi deildar getur talist jafngildi þess náms sem á vantar. Þó er við það miðað að til þess að koma til mats þurfi umsækjendur að hafa lokið eigi færri en 105 einingum á framhaldsskólastigi. Deildarforseti skal að fengnu mati inntökunefndar leggja fram tillögu til rektors um hvaða einstaklingum eigi að veita tækifæri til þess að sækja um inngöngu á þessum forsendum. Veitt undanþága gildir einungis um það nám sem sótt er um.