Hádegisfyrirlestraröð tónlistardeildar LHÍ hefur göngu sína á nýju ári föstudaginn 2. febrúar þegar Berglind María Tómasdóttir tónskáld og flytjandi fjallar um verk sín og vinnuaðferðir.
 
Berglind María Tómasdóttir er flytjandi og tónskáld sem vinnur þvert á miðla. Í verkum sínum leitast hún við að kanna ímyndir og erkitýpur sem og tónlist sem félagslegt fyrirbæri. Sem flautuleikari hefur Berglind komið fram á hátíðum víðs vegar í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hún hefur jafnframt leikið inn á fjölda hljóðrita, meðal annars sem einleikari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Verk Berglindar hafa meðal annars verið pöntuð og flutt á vegum Flautusamtaka Bandaríkjanna (The National Flute Association), Norrænna músíkdaga, Myrkra músíkdaga og Listahátíðar í Reykjavík. Berglind stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið og lauk doktorsprófi í flutningi samtímatónlistar frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2013. Berglind er dósent við Listaháskóla Íslands.
 
Fyrirlesturinn verður haldinn klukkan 12:15 í stofu 633 í Skipholti 31. Allir eru hjartanlega velkomnir. Fyrirlesturinn fer fram á bæði íslensku og ensku.