Alþjóðlegur samtímadans

Námsleiðin Alþjóðlegur samtímadans BA hefur það að markmiði að mennta danslistamenn og konur sem hafa sterka listræna sýn og getu til að viðhalda starfsferli í hinum alþjóðlega heimi samtímadansins eða til áframhaldandi náms. Hið nána samstarf við samtímadanssenuna í Reykjavík skapar fullkominn vettvang fyrir dýnamískt og kraftmikið lærdómsferli þar sem nemandinn fær bæði innblástur og er ögrað á tæknilegan, samfélagslegan, sem og listrænan hátt. Nemendur fá tækifæri til að rannsaka og þróa persónulega nálgun á aðferðir kóreógrafíu, fræða, tækni, sviðsetningu og framleiðslu á samtímadansverkum.
 
Námsleiðin skapar virkt samtal á milli samtímadanslistarinnar við aðrar listgreinar og vettvang fyrir könnun og rannsóknir á mismunandi aðferðum og nálgunum í gegnum samsköpun og samvinnu. Sviðslistadeild á í mjög góðri samvinnu við innlendar og erlendar listastofnanir og hátíðir á sviði samtímasviðslista t.a.m. Reykjavík Dance Festival, LÓKAL-alþjóðleg leiklistarhátíð, Íslenska dansflokkinn sem og önnur leikhús og söfn í borginni. 
 
Innan námsleiðarinnar eru þrír meginþræðir aðferða sem tvinnast saman: Tækni, fræði og skapandi ferli, auk þess sem áhersla er á að skapa sjálfbæra danslistamenn. Mikil áhersla er á að hlúa að og þróa gagnrýna hugsun nemendanna. Námsleiðin býður upp á krefjandi þjálfun í mismunandi aðferðum samtímadansaðferða og spuna, stutt af ballet fyrir samtímadansara og sómatískum aðferðum. Skapandi ferli hefur það að meginmarkmiði að þróa persónulega sýn og nálgun nemendanna, byggt á gagnrýnni nálgun á verklega vinnu og fræði.
 
Markmiðið námsins í heild er að kanna ný svið til listrænnar þróunar, víkka út hreyfitungumál nemendanna, styrkja gagnrýna nálgun og virkja samfélagslega og pólitíska meðvitund nemandans í tengslum við dans og kóreógrafíu. Náminu lýkur með tveimur lokaverkefnum og rannsóknarritgerð.

Námið er alþjóðlegt og er kennt á ensku.

Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands á Vimeo.

Nafn leiðar: Alþjóðlegur samtímadans
Nafn gráðu: BA
Einingar: 180 ECTS
Lengd náms: 6 annir – 3 ár

The intimate and collective environment of IAA is enhancing my individual growth.

Feeling the support and trust of fellow students, professors and the program director is unique.

It enables personal development towards becoming an independent performance artist on a big scale. It creates a space for playful and serious exploration where tremendous creativity emerges.

The diversity of the subjects of the Contemporary Dance program is expanding my physical, conceptual and artistic awareness towards dance enormously.

Studying in Iceland, a more isolated place, is allowing me to delve more deeply into every micro aspect of my studies. The dance scene in Reykjavík is very open minded and welcoming which offers great participation. 

Yelena Nadjeschda Ita Arakelow

Fagstjóri

Óhætt er að segja að með tilkomu námsleiðarinnar hefur íslenskt danssamfélag eflst mikið. Námsleiðin státar af einvalaliði af innlendum sem erlendum kennurum og listamönnum sem miðla til nemenda nýrri hugmyndafræði og aðferðum um danslistina. Þeirra innlegg, reynsla, fagmennska, áhugi og stuðningur er ómetanlegt og skilar árangri beint inn í fagið.

Námið á þessari námsleið er líkamlega sem andlega krefjandi, með löngum vinnudögum. Námið miðar að því að skila af sér tæknilegum og skapandi danslistamönnum sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi og opnum huga og eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og síbreytilegt starfsumhverfi sviðslista.

Katrín Gunnarsdóttir - fagstjóri