Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuEitt af markmiðum bókasafns og upplýsingaþjónustu LHÍ er að stuðla að upplýsingalæsi innan LHÍ með fræðslu og ráðgjöf til nemenda, kennara og starfsfólks skólans.
Á hverju skólaári er bókasafns og upplýsingaþjónusta LHÍ með kynningar og fræðslu fyrir nýnema, en einnig er boðið upp á fræðslu fyrir nemendur sem eru lengra komnir í námi sínu, meistaranema, kennara og aðra starfsmenn skólans.
Tilgangur fræðslunnar er að kynna bókasafnið fyrir nemendum og þær upplýsingalindir, stafrænar og prentaðar, sem það veitir aðgang að og kenna þeim að nýta sér þær meðan á háskólanámi þeirra stendur. Einnig er lögð áhersla á mat á gæðum upplýsinga og að nemendur geti valið úr og notað þær á markvissan hátt.
Hægt er að panta fræðslu með því að senda póst á rosa@lhi.is eða bokasafn@lhi.is
Kennurum LHÍ stendur til boða margvísleg þjónusta á bókasafninu.
Nánari upplýsingar um þjónustu má fá hjá starfsmönnum safnsins og/eða með því að senda fyrirspurn á bokasafn@lhi.is