Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuFyrsti fundur í nýrri rannsókn um Metamorphonics og nálgun fyrirtækisins í samfélagstengdri tónlist var haldinn í vikunni.
Þorbjörg Daphne Hall prófessor hjá Listaháskóla Íslands leiðir rannsóknina en í teyminu eru utan hennar Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths sem á MetamorPhonics fyrirtækið og setti m.a. á stofn Korda Samfónía samfélagshljómsveitina á Íslandi, Ásbjörg Jónsdóttir verkefnastjóri, Anna Hildur Hildibransdóttir lektor við Háskólann á Bifröst, Lee Higgins prófessor við York St. John háskólanum í Bretlandi og yfirmaður The International Centre for Community Music og Dr. Jo Gibson rannsakandi við The Institute for Social Justice hjá sama háskóla taka einnig þátt í rannsókninni og komu til Íslands til fyrsta fundar teymisins.
Í lýsingu á rannsókninni segir:
Til eru margvísleg samfélagsmiðuð tónlistarverkefni þar sem unnið er með fjölbreyttum hópum og samfélögum, t.d. einstaklingum í haldi eða skjólstæðingum heilbrigðisstofnana, einstaklinga á ólíkum aldri, með fjöllbreytta kunnáttu og bakgrunn. Þessi verkefni endurspegla þá hugmyndafræði að tónlist og tónlistariðkun geti haft jákvæð áhrif á fólk og jafnvel breytt lífi þess til hins betra. Meginmarkmið þessa verkefnis eru að rannsaka MetamorPhonics (MP) sem er dæmi um samfélagsmiðað tónlistarverkefni. Tilgangurinn er að skilja margvíslega þætti MP, meðal annars bakgrunn og áhugahvöt þátttakenda, hugmyndafræði og leiðarljós MP og bera saman við önnur samfélagsmiðuð tónlistarverkefni. Þá verður kennslufræðileg nálgun MP rannsökuð og sérstaklega skoðað hvernig listræn stjórnun og ákvarðanataka fer fram. Þá verður jafnframt greint hvernig bakgrunnur þátttakenda hefur áhrif á tónlistarlega nálgun. Auk þess verður skoðað hvaða áhrif þátttaka í MP verkefnum hefur og hvort hún hefur einhver varanleg áhrif á hljómsveitarmeðlimi og þeirra líf utan við verkefnið. Í verkefninu er einnig lögð áhersla á að þjálfa tónlistarleiðtoga til rannsókna á eigin starfi, þróa rannsóknaraðferðir sem snúa að samfélagsmiðuðum tónlistarverkefnum, og tryggja fjölbreyttar miðlunarleiðir á rannsóknarmiðurstöðum þar sem rannsakendur, hag- og fagaðilar fá aðgengi að niðurstöðunum.
Á mynd: Fv. Jo Gibson, Ásbjörg Jónsdóttir, Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, Þorbjörg Daphne Hall, Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Lee Higgins.