Edda Karólína Ævarsdóttir 
Stress
 
Stress er nánast viðvarandi ástand í lífi margra í dag. Stöðugt álag og áreiti úr öllum áttum veldur því að fólk virðist taka stressi sem óhjákvæmilegum og jafnvel eðlilegum hlut. Stress er þó óeðlilegt ástand, sem getur haft mikil og alvarleg áhrif á líkama og sál – meiri og alvarlegri en margur áttar sig á. Í þessu verkefni er leitast við að skýra í máli og myndum upplifun stress og kvíða; hvað gerist í líkamanum sem veldur þessari upplifun, afleiðingar þess vari það lengi og hvað gera megi til að sporna gegn því. STRESS er verk prentað í riso-vél.