Laugardaginn 26. maí 2018 buðu meistararanemar í listkennsludeild Listaháskóla Íslands til útskriftarviðburðar í Menningarhúsunum í Kópavogi.
Þar kynntu útskriftarnemendurnir lokaverkefni sín með margskonar hætti og gafst gestum meðal annars kostur á að taka þátt í fjölbreyttum smiðjum sem voru lýsandi fyrir lokaverkefni nemenda.
Dagskrá hófst í Náttúrufræðistofu Kópavogs á sýningaropnun og leirsmiðju sem
Elín Anna Þórisdóttir hélt utan um og Hugrún Margrét Óladóttir bauð einnig upp á skynjunarsmiðju.
Óhætt er að segja að gestgjafar, gestir og þátttakendur hafi notið sín vel á deginum enda var um afar fjölbreytta og vandaða dagskrá að ræða af hendi listgreinakennaranna.
Ljósmyndir: Leifur Wilberg Orrason