Starfsþróunarsjóður akademískra starfsmanna Listaháskólans hefur það meginhlutverk að styðja við starfsþróun akademískra starfsmanna skólans. Meðal efnisþátta sem sjóðurinn styrkir er m.a. þátttaka í námskeiðum, ráðstefnum og sýningum, miðlun og listflutningur á opinberum vettvangi, fyrirlestrahald utan skólans og kynnisferðir aðrar en heimsóknir í menntastofnanir. Virk þátttaka í því sem sótt er um skal njóta forgangs við úthlutun. Horft er til hversu vel verkefnið styður við starfsþróun í starfi við Listaháskólann og hvernig það skilar sér inn í kennslu umsækjanda. Ekki eru greiddir dagpeningar. Verkefnin skulu vera skýrt skilgreind og með afmarkandi tímasetningum.

Auglýst er tvisvar á ári úr sjóðnum, að jafnaði í upphafi hverrar annar. Rétt til að sækja um styrk úr sjóðnum hafa allir fastráðnir akademískir starfsmenn Listaháskóla Íslands og stundakennarar sem kenna a.m.k. 200 G-tíma á yfirstandandi misseri.