Út er komið verkið Lóðrétt rannsókn: Ódauðleg verk Áhugaleikhúss átvinnumanna 2005-2015 eftir Steinunni Knútsdóttur, deildarforseta sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands. Útgefendur eru Listaháskóli Íslands og Háskólaútgáfan.

Í bókinni varpar Steinunn persónlegu ljósi á tíu ára sögu Áhugaleikhúss atvinnumanna og rekur tilurð leikverkanna sem saman mynda kvintólógíuna „Ódauðleg verk“. Hún kryfur hvert og eitt verk út frá samhengi þess, aðferðum og erindi og veitir lesandanum innsýn í menningarpólitískan jarðveg verkanna. Enn fremur lýsir hún hér afstöðu leikhópsins til starfsumhverfis sviðslista á Íslandi. Þá birtast í bókinni handritin sjálf og opinber gagnrýni um sviðsetningar leikhópsins í fullri lengd, auk hugleiðinga samferðafólks úr listheiminum.

Steinunn Knútsdóttir er deildarforseti sviðslistadeildar Listaháskólans, auk þess að vera listrænn stjórnandi Áhugaleikhúss atvinnumanna og Netleikhússins Herbergi 408. Hún stundaði leiklistarnám í Árósum í Danmörku og lauk síðar meistaranámi í leiklistarfræðum og leikstjórn frá De Montfort-háskólanum í Leicester á Englandi, og diplómanámi í leikstjórn undir stjórn Jurij Alschits hjá SCUT. Þá lauk hún BA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1991.

Áður hefur komið út, eftir Steinunni Knútsdóttur, verkið Lárétt rannsókn: örverk um áráttur, kenndir og kenjar (2010) sem einnig fjallar um Áhugaleikhús atvinnumanna.