Listir og menning sem meðferð: Íslensk söfn og alzheimer
Útgáfa, málþing og fyrirlestur
Fyrirlesturinn og málþing eru á vegum minnismóttöku Landspítala Íslands, safnafræða Háskóla Íslands, listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, FÍSOS, Alzheimersamtakanna, Reykjavíkurborgar og Listasafns Íslands.
19. september 2017 í Salnum í Kópavogi kl. 20:00
Francesca Rosenberg, deildarstjóri fræðsludeildar Nútímalistasafnsins (MoMA) í New York heldur fyrirlestur um dagskrána ‘Meet me at MoMA’ sem tileinkuð er alzheimer-sjúkdómnum, en einnig fjallar hún um hvernig safnið hefur komið til móts við sjón- og heyrnaskerta. Dagskrá MoMA hefur haft gríðarleg áhrif víða um heim, tengt söfn og fræðimenn í átaki þeirra að opna umræðuna um aðgengi og almenn lífsgæði í safnaheiminum.
Ókeypis aðgangur. Fyrirlesturinn er á ensku. The lecture is in English.
20. september 2017 kl. 13:00–18:00
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur kl. 13:00–15:00 og Listasafn Íslands kl. 15:00–18:00
Bókin Listir og menning sem meðferð: íslensk söfn og alzheimer verður til sölu frá 12:00 til 12:45 og í safnbúð Listasafns Íslands. Hún er gefin út af Háskólaútgáfu og styrkt af Landspítala Íslands, Hagþenki, Myndlistarsjóði, Safnasjóði, Velgerðarsjóði Auroru, Högum og Vísindasjóði Öldrunarfræðafélags Íslands.
Málþing í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl. 13:00–15:00
Kynning á bókinni Listir og menning sem meðferð: íslensk söfn og alzheimer. Fjallað er um hvernig nýta megi listir til að auka lífsgæði fólks með alzheimer og ástvini þess. Alzheimer sviptir einstaklinginn smám saman sjálfsmeðvitundinni en myndlist og íslenskur menningararfur geta virkjað hugmyndaflugið, tilfinningaminnið og getuna til að eiga í félagslegum samskiptum.
Málþingið verður bæði á íslensku og ensku. The symposium is both in Icelandic and English.