Hreinn Bernharðsson og Friðrik Steinn Friðriksson, sem báðir starfa við Hönnunar- og arkitektúrdeild sáum um hönnun og uppsetningu sýningarinnar Íslensk plötuumslög fyrir Hönnunarsafn Íslands. Sýningin stendur yfir til 28. janúar 2018, en sýningarstjóri er Reynir Þór Eggertsson. 

 

Útlit og þróun plötuumslaga hefur þróast með tíðaranda og tækni frá því um miðbik síðustu aldar. Á sýningunni gefur að líta rúmlega 120 dæmi sem leiða okkur í gegnum þessa þróun.

 

Í texta um sýninguna segir: "Tilkoma geisladiska á níunda áratugnum bauð upp á nýja möguleika og nú á öld stafrænna tónlistarveitna stöndum við aftur á krossgötum. Tími geisladisksins er að líða undir lok en á sama tíma hafa vínylplötur gengið í endurnýjun lífdaga. En til hvers að eignast áþreifanlega hluti með hljóðupptökum þegar tæknin gerir fólki kleift að streyma eða hlaða niður efninu af Netinu, jafnvel ókeypis? Eru umbúðir og vörur úr plasti og öðrum gerviefnum tímaskekkja í samfélagi sem vill draga úr umbúðum og minnka vistspor sitt eða eru þær órjúfanlegur hluti af tónlistarupplifuninni og liður í því að tónlistarfólk fái greitt fyrir störf sín?"

 

Hönnunarsafn Íslands er staðsett við Garðatorg 1, heimasíða sýningarinnar er hér og þess má geta að sunnudaginn 5. nóvember kl 16.00 kemur safnarinn Oddgeir Eysteinsson í spjall.