HILLEVI CECILIA HÖGSTRÖM

A HAND IN THE GAME

Einkasýning Hillevi Cecilia Högström opnar fimmtudaginn 26. október kl.17:00 – 19:00 í Kubbnum, Laugarnesvegi 91. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

“But what is remarkable is that he continues relating in the same disastrous manner to the disaster produced by his own disastrous relationship with the world. He calculates the rate at which the ice pack is disappearing. He measures the extermination of the non-human forms of life.”

- The invisible Committee, to our friends

Facebook event here

hillevi.png
 

Á tímabilinu 5. október – 3. desember stendur yfir röð 23 einkasýninga nemenda á 3. ári við myndlistardeild Listaháskólans.

Á hverjum fimmtudegi á tímabilinu opna í senn þrjár einkasýningur í mismunandi sýningarýmum skólans í Laugarnesi, í Naflanum sem er í miðju húsinu, Kubbnum á annarri hæð og Huldulandi sem er innst í húsinu, sem þekkt er fyrir langa ganga og ranghala. Einn nemandi mun sýna í fyrrverandi söluturninum við Sunnutorg á Langholtsvegi 70. Sýningaropnanir eru á fimmtudögum kl. 17-19 og eru allir velkomnir.

Á föstudögum kl. 15 (nema annað sé auglýst) fara fram leiðsagnir um sýningarnar þar sem nemendur segja frá verkum sínum. Almennt byrjað í Nafla.

Einkasýningar nemenda eru liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora, í umsjón Bjarka Bragasonar. Leiðbeinendur ásamt Bjarka eru Unnar Örn og Anne Rombach. Juliane Foronda sinnir aðstoðarkennslu en gestir í námskeiðinu hafa verið Nadim Samman, Werner Herzog og Sigrún Sirra Sigurðardóttir.