Graduation concert Salnum, Kópavogi fimmtudaginn 14. desember kl 20:00.
Free entrance - open for all.
Pianist: Richard Simm
Program:
Johann Sebastian Bach (1685-1750) Svíta fyrir einleiksselló nr. 6, BWV 1012
Prelude
Allemande
Courante
Sarabande
Gavotte I og II
Gigue
Claude Debussy (1862-1918) Sónata fyrir selló og píanó, L. 135
Prolouge: Lent, sostenuto e molto risoluto
Sérénade: Modérément animé
Finale: Animé, léger et nerveux
Hlé
Johannes Brahms (1833-1897) Sónata fyrir píanó og selló, op. 99
Allegro vivace
Adagio affettuoso
Allegro passionato
Allegro molto
Þórdís Gerður Jónsdóttir hóf nám í sellóleik átta ára gömul við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, þar sem kennari hennar var lengst af Þórhildur Halla Jónsdóttir, og lauk þaðan framhaldsprófi vorið 2011 undir handleiðslu Margrétar Árnadóttur. Haustið 2011 hóf Þórdís nám við jazzdeild Tónlistarskóla FÍH þar sem aðalviðfangsefni hennar voru spuni og að finna sellóinu hlutverk sem leiðandi hljóðfæri í jazztónlist. Þórdís lauk burtfararprófi frá skólanum vorið 2015 og var aðalkennari hennar þar Hilmar Jensson, gítarleikari, en einnig sótti hún sellótíma hjá Sigurgeiri Agnarssyni veturinn 2013-2014. Þórdís hóf nám við Listaháskóla Íslands haustið 2014 og er aðalkennari hennar Bryndís Halla Gylfadóttir. Á námstímanum í Listaháskólanum hefur Þórdís spilað með ýmsum hópum tónlistarmanna, s.s. kvintetti Sigurðar Flosasonar og Hans Oldings, Caput, Strengjasveitinni Spiccato, Elektra ensamble og Umbra ensamble.