Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér tónbókmenntir 20. aldar. Námskeiðið er valnámskeið á BA stigi tónlistardeildar.
 
Í námskeiðinu eru tekin fyrir mikilvæg afmörkuð viðfangsefni er tengjast tónbókmenntum 20. aldar. Viðfangsefni geta verið breytileg á milli ára.
 
Kennsla fer að mestu fram í fyrirlestrum þar sem leitast verður við að bregða ljósi á sögulegt umhverfi, fagurfræði, formfræði og tónsmíðaaðferðir í tengslum við áherslur námskeiðs hverju sinni.
 
Námsmat: Próf, skrifleg verkefni, ástundun.
 
Kennari: Úlfar Ingi Haraldsson.
 
Staður og stund: Þverholt.
 
09.01.2019 10:30 - 12:10
16.01.2019 10:30 - 12:10
23.01.2019 10:30 - 12:10
30.01.2019 10:30 - 12:10
06.02.2019 10:30 - 12:10
13.02.2019 10:30 - 12:10
20.02.2019 10:30 - 12:10
06.03.2019 10:30 - 12:10
13.03.2019 10:30 - 12:10
20.03.2019 10:30 - 12:10
 
Tímabil: 9. janúar - 20. mars. (10 skipti), 2019.
 
Einingar: 3 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
 
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
 
Verð: 36.750 kr. (án eininga) /  45.900 kr (með einingum).
 
Forkröfur: BA. gráða eða sambærilegt nám.
 
Nánari upplýsingar:  Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: indra [at] lhi.is.