Einkasýning Þorsteins Eyfjörð opnar fimmtudaginn 30. nóvember kl.17:00 – 20:00 í Kubbnum, Laugarnesvegi 91. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.
Blá birta úti, nýfallinn snjór. Allt slétt. Eyði einkennir snævi kæfða jörðina. Mild þögn þegar snjórinn sogar í sig hljóðið.
Hula hefur tvær hliðar. Fituvefur skilur vöðva að, leg verndar móður jafnt afkvæmi.
Hlaðið ósjálfrátt, hleður ósjálfrátt. Áreksturinn fæðir ástand; Afkvæmið hefur ekki líkama.
Eyði er ekki dauði heldur millibil. Tómarúm milli hér var, nú er og það verður. Eilífðin bíður af sér undantekninguna frá sjálfri sér; spor þurrkast út, þoka leysist upp, snjór bráðnar.
Á tímabilinu 5. október – 3. desember stendur yfir röð 23 einkasýninga nemenda á 3. ári við myndlistardeild Listaháskólans.
Á hverjum fimmtudegi á tímabilinu opna í senn þrjár einkasýningur í mismunandi sýningarýmum skólans í Laugarnesi, í Naflanum sem er í miðju húsinu, Kubbnum á annarri hæð og Huldulandi sem er innst í húsinu, sem þekkt er fyrir langa ganga og ranghala. Einn nemandi mun sýna í fyrrverandi söluturninum við Sunnutorg á Langholtsvegi 70. Sýningaropnanir eru á fimmtudögum kl. 17-19 og eru allir velkomnir.
Á föstudögum kl. 15 (nema annað sé auglýst) fara fram leiðsagnir um sýningarnar þar sem nemendur segja frá verkum sínum. Almennt byrjað í Nafla.
Einkasýningar nemenda eru liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora, í umsjón Bjarka Bragasonar. Leiðbeinendur ásamt Bjarka eru Unnar Örn og Anne Rombach. Juliane Foronda sinnir aðstoðarkennslu en gestir í námskeiðinu hafa verið Nadim Samman, Werner Herzog og Sigrún Sirra Sigurðardóttir.