Kvika – Tímarit Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands stofnað.
 
Kallað er eftir efni í 1. tölublað
 
Vefritið Kvika er gefið út af sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang, aðhald og hvata fyrir hverskonar rannsóknarvinnu tengda sviðslistum innan sem utan skólans.
Lögð verður áhersla á opinn vettvang, þ.e.a s mikill sveigjanleiki verður til staðar varðandi tegundir texta sem tímaritið inniheldur. Tekið verður á móti stuttum sem löngum greinum/textum út frá ýmsum sjónarhornum (fræðilegum, fagurfræðilegum, pælingar, yfirlýsingar (manifesto), listrænar nálganir/aðferðir, umfjallanir, úttektir, o.fl.). Einnig má koma með uppástungur varðandi tegundir af textum.
 
Kallað verður eftir textum ekki greinum til að leggja áherslu á fjölbreytileika tímaritsins.
 
Vefritið beitir sér fyrir því að vera vettvangur fyrir:
· Orðræðu um sviðslistir á íslensku máli
· Miðlun þekkingar
· Varðveislu rannsókna
 
Með vefritinu viljum við auka umsvif rannsókna á sviði sviðslista, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan sviðslistanna á Íslandi
 
Ritstjórn:
Ásgerður G. Gunnarsdóttir og Karl Ágúst Þorbergsson.

 

TIL HÖFUNDA
 
Viðmið varðandi innsendra texta:
 
Tegundir texta: fræðilegar greinar, umfjöllun um sviðsverk, listrænar nálganir, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi sviðslistastaf/kennslu/list viðkomandi eða annarra.
 
Tímaritið er opið fyrir uppástungum hverju sinni varðandi textagerðir og má hér nefna sem dæmi umfjallanir eða úttektir á bókum, sviðsverkum, gjörningum, hátíðum, o.s.frv. Einnig mætti hugsa sér heimildavinnslu eða viðtöl á myndbandsformi eða hljóðformi.
 
Leitast verður til við að virkja nokkur lykilhugtök varðandi gerð texta og aðferða til að skapa þekkingu og skilning: „reflection“ eða ígrundun (í framkvæmd eða eftir framkvæmd), rýni (á eigin list eða annarra), tengsl (finna tengsl, búa til tengsl), samhengi, og bakvinnsla/ferli (hvað liggur að baki, umhverfis, framundan).
 
Grunnflokkar: sviðslistir/sviðshöfundur, sviðslistafræði, flytjendur/flutningur, annað (gagnrýni/umfjöllun/dómur…)
 
Hvatt er til að nýta sér starfræna umhverfi ritsins og bæta við vídeó – og myndskrám.
 
Greinar eru ekki ritrýndar að þessu sinni, en tímaritið stefnir á að innihalda bæði ritrýnt og óritrýnt efni.
 
Þó vefritið leggi áherslu á íslenska tungu er einnig tekið á móti textum á ensku
 
Kallað er eftir efni í fyrsta tölublað:
Lengd texta: 500 – 5.000 orð
Skilafrestur texta: 16. Febrúar 2018
Texta skal senda inn sem Word skrá (.doc, .docx)
Myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg, .pdf)
Senda skal efnið á: kvika [at] lhi.is
 
Áhugasamir geta einnig haft samband í tölvupósti ef það eru einhverjar spurningar.