Útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands fer að hluta til fram í Menningarhúsum Kópavogs næstu árin samkvæmt samkomulagi sem undirritað hefur verið milli LHÍ og Menningarhúsanna. Jafnframt var innsiglaður samtarfsvilji um að taka upp samstarf á sviði listkennslu LHÍ og menningarfræðslu Menningarhúsanna. Með því er lýst yfir vilja til að breikka samstarfið enn frekar.

Útskriftartónleikar LHÍ fara fram í Salnum í apríl og maí og útskriftarsýning meistaranema í myndlist og hönnun  fer fram í Gerðarsafni  í maí. Þess má geta að útskriftarsýningin hefur verið í Gerðarsafni frá upphafi, þetta er því fjórði útskriftarárgangurinn sem sýnir í safninu í vor.

Þegar okkur er boðið af heilindum og höfðingsskap myndarleg og fagleg aðstaða heils bæjarfélags til að vinna með – um stund í það minnsta – þá upplifum við það sem meira en gestrisni. Við upplifum það sem staðfestingu á vægi þess sem við höfum fram að færa, sem viðurkenningu á gæðum skólastarfsins og sem uppljómun yfir því sem framtíðin getur borið í skauti sér ef að henni er hlúð. 

Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor LHÍ 

 

Sýning meistaranema í hönnun og myndlist í Gerðarsafni verður opnuð 6. maí og stendur yfir til 21. maí. Útskriftartónleika tónlistardeildar LHÍ í Salnum spanna frá 19. apríl til 24. maí. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Einnig verða veitt verðlaun úr Styrktarsjóði Halldórs Hansen 24. maí í Salnum, en Halldór Hansen erfði skólann af öllum eigum sínum. Verðlaunin eru veitt til framúrskarandi nemenda við Listaháskóla Íslands.​

 

Samstarf Menningarhúsanna og LHÍ styður vel við þá sýn sem við höfum hjá Menningarhúsunum og þá stefnu sem við vinnum eftir. Samstarf við Listaháskóla Íslands hefur jákvæð áhrif á starfsemi Menningarhúsanna og smitar út frá sér í aðra kima menningarlífs bæjarins. Það er einkar ánægjulegt að nú mun samstarfið verða enn breiðara og ná meðal annars inn í menningarfræðsluna okkar.

Arna Schram, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi.