Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Kynning á nýrri stefnu Listaháskóla Íslands 2024-2028

  • 3.október 2024

Síðastliðinn föstudag var ný stefna skólans kynnt í Hamri. Fjöldi fólks bæði innan og utan skólans kom við til að kynna sér hana. Ljúfir tónar tónlistanema tóku á móti gestum í upphafi dagskrár en um tónlistarflutning sáu þau: Eik Haraldsdóttir sem söng, Fannar Sigurðsson spilaði á gítar og Friðrik Örn Sigþórsson á kontrabassa.

Kristín Eysteinsdóttir rektor fór yfir leiðarljósin þrjú ásamt markmiðum þeirra og samantekt helstu aðgerða sem varða veginn til framtíðar.
Verk nemenda í vöruhönnun voru til sýnis á bókasafni skólans á meðan skálað var fyrir áfanganum.

Við stækkum veruleikann!

Yfirskrift nýrrar stefnu Listaháskólans vísar í hlutverk listarinnar, hún kjarnar tilgang okkar, veitir hressilegan innblástur og byr undir báða vængi.

Stefnan var unnin allan síðasta vetur í breiðu samtali við starfsfólk og nemendur skólans. Aðaláherslan í þeirri vinnu var að skilgreina sameiginleg markmið okkar til næstu ára og kortleggja með skýrum hætti þau skref sem við þurfum að stíga til þess að ná þeim.

Leiðarljós nýrrar stefnu Listaháskólans eru þrjú og undir hverju og einu þeirra setjum við okkur þrjú megin markmið. Undir hverju meginmarkmiði höfum við skilgreint og tímasett fjöldann allan af aðgerðum sem gera okkur kleift að innleiða stefnuna með árangursríkum hætti á næstu fjórum árum. Í nýrri stefnu leggjum við áherslu á skapandi hugsun, fjölbreytileika og að vera hreyfiafl í síbreytilegum heimi.

Ég er einstaklega þakklát fyrir þátttöku starfsfólks og nemenda í mótun stefnunnar. Við setjum markið hátt til næstu ára og ég trúi því að þannig getum við stækkað veruleikann og haft áhrif til framtíðar.

Kristin Eysteinsdóttir, rektor