Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuNámið miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Námið miðar að því að mennta fólk til kennslu ásamt því að efla með því færni og fræðilegan grunn til að miðla þekkingu sinni á ólíkum vettvangi.
Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning og þekkingu á starfi kennarans, bæði fræðilega og á vettvangi. Þeir geti skipulagt nám og námsþætti út frá gildandi námskrám og valið námsgögn, náms- og matsaðferðir við hæfi. Kennsla og miðlun eru einnig skoðuð í víðara samhengi og nemendur hvattir til að setja fram eigin sýn og hugmyndir um nám og námsframboð í samfélaginu.
Inntökuskilyrði
Meistaragráða í öðrum greinum en listum.
Uppbygging náms
Námið er fjölbreytt og byggir á námskeiðum í kennslu-, og sálarfræði, heimspeki og félagsfræði, samhliða þjálfun í kennslu og miðlun listgreina og verkefna á vettvangi bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Námið er eins árs (tveggja missera), 60 eininga fræðilegt og hagnýtt framhaldsnám í kennslufræðum sem lýkur með diplóma gráðu.
Að loknu námi
Að loknu námi hljóta nemendur diplómagráðu í kennslufræðum. Nemendur hafa aflað sér þekkingar og reynslu til að starfa á öllum skólastigum sem og sinna ólíkum menningar- og menntunartengdum verkefum í samfélaginu.
Nemendur fá starfsréttindi (leyfisbréf) við útskrift. Leyfisbréfið innifelur rétt útskrifaðra nemenda til að kalla sig kennara og starfa sem slíkur hér á landi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.
Allar umsóknir um nám fara í gegnum umsóknargátt og munu öll samskipti varðandi umsóknarferlið fara þar fram. Umsóknargjaldið er greitt í seinasta skrefi ræfrænu umsóknarinnar og er 5.000 kr.
Innritaðir og brautskráðir nemendur sem eru með Ugluaðgang þurfa einnig að stofna sérstakan aðgang í samskiptagátt þegar sótt er um nýtt nám.
Í rafrænu umsókninni gefst umsækjanda kostur á að tilgreina ástæður umsóknar, markmið, framtíðarsýn, áherslugrein og fleira í stuttum texta. Umsækjendur fá staðfestingu á því að LHÍ hafi móttekið umsóknina eftir að gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum fylgiskjölum. Í listkennsludeild eru nemendur teknir inn einu sinni á ári og hefja nám á haustönn.
6. janúar 2025
8. apríl 2025
Maí 2025
Til að umsókn sé fullgild þarf að greiða umsóknargjald og eftirfarandi gögn þurfa að berast Listaháskólanum:
Staðfest afrit af prófskírteinum, svarthvítt ljósrit gildir ekki.
Umsækjendur eru beðnir um að skrifa nöfn og netföng tveggja umsagnaraðila í þar til gerðan reit í umsókninni. Æskilegt er að annar umsagnaraðili tengist námi og hinn vinnu. Þegar umsókn er skilað fá umsagnaraðilar tölvupóst þar sem þeir eru beðnir um að skila inn umsögn um viðkomandi umsækjanda. Hver umsögn má ekki vera lengri en ein síða og hægt er að skila henni á íslensku eða ensku.
Umsækjendur sem uppfylla öll inntökuskilyrði námsleiðar eru boðaðir í inntökuviðtal.
Umsækjendur þurfa ekki að hafa með sér gögn í inntökuviðtal nema þeirra sé sérstaklega óskað af inntökunefnd.
Inntökunefnd listkennsludeildar fer yfir umsóknir og velur umsækjendur sem fá boð um skólavist.
Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta hvort þeir hyggist taka því með því að greiða skrásetningargjald fyrir komandi skólaár.
Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og er inntökunefnd ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.