Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuNámið færir nemendum fjölbreytt verkfæri til að takast á við áskoranir leikarastarfsins. Lögð er áhersla á að samþætta þjálfun líkama, huga og anda í skapandi og tæknilegri vinnu.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Leikaranám er þriggja ára nám til 180 eininga sem lýkur með BA gráðu í sviðslistum.
Markmið námsins er að útskrifa víðsýna og skapandi leikara, sem búa yfir þeirri tækni og þekkingu sem sviðslistaumhverfi samtímans kallar á. Námið færir nemendum fjölbreytt verkfæri til að takast á við starf leikarans. Nemendur mæta tæknilegum, hugmyndafræðilegum og listrænum áskorunum sem býr þá undir starf á fagvettvangi og/eða áframhaldandi nám.
Uppbygging náms
Undirstöður leikaranámsins eru leiktúlkun, tækni og fræði, auk þess sem nemendum er jafnt og þétt veitt innsýn í fagumhverfi sviðslista. Í leiktúlkunaráföngum öðlast nemendur færni og þekkingu í ólíkum aðferðum leiktúlkunar. Í tækniáföngum er kennd raddbeiting, hreyfing og söngur sem styðja við og tvinnast inn í alla vinnu leikarans. Í fræðiáföngum öðlast nemendur þekkingu og skilning á sögulegu og samfélagslegu samhengi sviðslista, efla gagnrýna hugsun um fagið og þroska meðvitund um erindi leikarans við áhorfendur og samfélagið.
Náminu er ætlað að virkja sköpunarkraft nemenda, gagnrýna hugsun og víðsýni. Í náminu er leiklist færð í samtal við aðrar listgreinar sem veitir nemendum tækifæri á samvinnu og samtali við nemendur af öðrum námsleiðum skólans.
Sviðslistadeild er í góðu samstarfi við bæði innlendar og erlendar listastofnanir, hátíðir og sjálfstæða listamenn, svo sem Reykjavík Dance Festival, LÓKAL alþjóðlega leiklistarhátíð, Íslenska dansflokkinn, Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, og önnur leikhús og söfn um land allt.
Nemendur ljúka námi með útskriftarverkefni og lokaritgerð.
Námið skiptist í:
Að loknu námi
Nemendur sem lokið hafa leikaranámi við LHÍ hafa skapað sér tækifæri til að vinna sem leikarar í atvinnuleikhúsum og sjálfstæðu sviðslistasenunni bæði hérlendis og erlendis. Námið býr nemendur einnig vel undir áframhaldandi nám á meistarastigi.
Umsóknarferlið gengur þannig fyrir sig að fyrst er rafræn umsókn fyllt út, umsóknargjald greitt og umsókn staðfest. Hægt er að vista umsókn á meðan verið er að vinna í henni.
Fyrsta þrepið í inntökuferli námsleiðarinnar er í formi myndbandsupptöku af flutningi á eintali umsækjenda. Myndbandsupptakan er send með rafrænni umsókn sem viðhengi. Sjá nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Deildarforseti skipar fjögurra manna inntökunefnd í samráði við fagstjóra.
Inntökunefnd hefur það hlutverk að velja þá einstaklinga sem hún telur að hafi menntun og hæfileika til að nýta sér það nám sem í boði er í leikaranámi sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands. Ekki skal túlka mat nefndarinnar á þann hátt að í því felist dómur um listræna hæfileika umsækjenda almennt.
Inntökuferlið er í þremur þrepum. Í 2. og 3. þrepi situr áheyrnarfulltrúi nemenda leikaranáms en hann hefur ekki atkvæðarétt í nefndinni.
Störf inntökunefndar eru trúnaðarmál og birtir hún ekki umsagnir um einstakar umsóknir. Úrskurður hennar er endanlegur og verður ekki vísað til endurskoðunar annarsstaðar innan skólans.
Þættir sem inntökunefnd metur í 1. þrepi eru:
Leiðbeiningar fyrir 1. þrep.
Þú velur eitt af eftirfarandi eintölum til flutnings (PDF linkar):
Myndbandsupptakan má vera að hámarki tvær mínútur.
Hér má skoða leiðbeiningar myndband
Hvernig deila á myndbandsupptökunum:
Hér má sjá kynningarvideo á hvernig hlaða á upp “unlisted” youtube myndbandi:
Þættir sem inntökunefnd metur í 2. og 3. þrepi eru: