Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Listir og velferð MA

Meistaranám í listum og velferð miðar að því að leiða saman breiðan hóp fagfólks sem hefur áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar. Markmiðið með náminu er að fjölga snertiflötum listanna við samfélagið og auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum.

  • Opnað fyrir umsóknir

    6. janúar 2025

  • Umsóknarfrestur

    8. apríl 2025

  • Umsóknum svarað

    Maí 2025

  • Skrásetningargjald

    Skoða nánar

  • Nafn námsleiðar

    Listir og velferð MA

  • Nafn gráðu

    MA

  • Einingar

    120 ETC

  • Lengd náms

    4 annir – 2 ár

Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.

Um námið

Meistaranám í Listum og velferð er 120 eininga námsleið fyrir þau sem hafa áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar.

Sjálfsögð áhersla í samfélaginu um aukið aðgengi allra að listsköpun og listviðburðum kallar á markvissa uppbyggingu og á fjölda fólks með þekkingu á sviði lista og velferðar.

Markmiðið með náminu er að auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum. Áhersla er á að þróa nýjar leiðir í þverfaglegri samvinnu stofnana, félagasamtaka og listamanna í störfum sem fara fram við síbreytilegar aðstæður með fjölbreyttum hópi einstaklinga.

Inntökuskilyrði

Aðgangsviðmið er bakkalárgráða í listum eða bakkalárgráða í heilbrigðisvísindum og talsverð menntun og/eða reynsla í einhverri listgrein. Áhugi og reynsla af vinnu með viðkvæmum hópum er skilyrði.

Uppbygging náms

Námið byggir á fjölbreyttum námskeiðum, s.s. listmeðferðarfræði, listum í samfélaginu, rannsóknaraðferðum og vinnustofum, ásamt vinnu á vettvangi. Náminu er ætlað að styðja við einstaklingsbundinn áhuga nemenda, sem þróar sína eigin leið í gegnum námið og byggir lokaverkefni sitt á persónulegum faglegum áhuga, reynslu og framtíðarsýn. Í gegnum aðferðir lista og með samvinnu faggreina og ólíkra hópa samfélagsins er markmiðið að styðja við borgaralega þátttöku og félagslega ábyrgð nemenda og stofnana í átt að inngildingu.

Námið er 120 einingar og fullt nám í tvö ár. Einnig má skipta náminu á fleiri ár.

Námið skiptist í:

  •     Skyldunámskeið, 67 einingar
  •     Valnámskeið, 33 einingar
  •     Lokaverkefni 30 einingar

Kennslutungumál er íslenska

Að loknu námi

Að loknu námi í listum og velferð hafa nemendur aflað sér þekkingar og reynslu í að vinna með ólíkum hópum að listtengdum verkefnum.

Umsóknar- og inntökuferli

Allar umsóknir um nám fara í gegnum umsóknargátt og munu öll samskipti varðandi umsóknarferlið fara þar fram. Umsóknargjaldið er greitt í seinasta skrefi ræfrænu umsóknarinnar og er 5.000 kr.

Innritaðir og brautskráðir nemendur sem eru með Ugluaðgang þurfa einnig að stofna sérstakan aðgang í samskiptagátt þegar sótt er um nýtt nám.

Í rafrænu umsókninni gefst umsækjanda kostur á að tilgreina ástæður umsóknar, markmið, framtíðarsýn, áherslugrein og fleira í stuttum texta.  Umsækjendur fá staðfestingu á því að LHÍ hafi móttekið umsóknina eftir að gengið hefur verið úr skugga um að umsækjandi hafi skilað inn öllum nauðsynlegum fylgiskjölum. Í listkennsludeild eru nemendur teknir inn einu sinni á ári og hefja nám á haustönn.

Opnað fyrir umsóknir

6. janúar 2025

Umsóknarfrestur

8. apríl 2025

Umsóknum svarað

Maí 2025

Verðskrá

Skoða nánar

Sérleiðbeiningar listkennsludeildar

Til að umsókn sé fullgild þarf að greiða umsóknargjald og eftirfarandi gögn þurfa að berast Listaháskólanum:

  • 1. Staðfest afrit af prófskírteinum

    Skylda

    Staðfest afrit af prófskírteinum, svarthvítt ljósrit gildir ekki.

  • 2. Umsagnir tveggja meðmælenda

    Skylda

    Umsækjendur eru beðnir um að skrifa nöfn og netföng tveggja umsagnaraðila í þar til gerðan reit í umsókninni. Æskilegt er að annar umsagnaraðili tengist námi og hinn vinnu.

    Haft verður samband við meðmælendur og óskað eftir meðmælum eftir þörfum.

  • 3. Greinargerð: Ástæður umsóknar

    Skylda
    Í þessari greinagerð eru umsækjendur vinsamlegast beðnir um að gera grein fyrir því;
    a. hvaða þýðingu þeir telja að námið hafi fyrir sig,
    b. hvað þeir telja eftirsóknarvert við nám í menntunarfræðum listgreina og listum í skólastarfi.
    c. hvaða kosti umsækjandi hefur til að bera sem líklegt er að muni koma sér vel í kennslu og miðlun.
    Hámarks lengd er 300 orð.
  • 4. Ferilskrá (CV)

    Skylda
    Ferilskrá með almennum upplýsingum um umsækjanda skal fylgja umsókn. Ferilskrá skal innihalda yfirlit yfir menntun, störf, tungumálagetu og aðra reynslu sem umsækjandi telur að nýtist í náminu. Ferilskráin ætti ekki að vera lengri en tvær síður.
  • Inntökuferli

    Umsækjendur sem uppfylla öll inntökuskilyrði námsleiðar eru boðaðir í inntökuviðtal.

    Umsækjendur þurfa ekki að hafa með sér gögn í inntökuviðtal nema þeirra sé sérstaklega óskað af inntökunefnd.

    Inntökunefnd listkennsludeildar fer yfir umsóknir og velur umsækjendur sem fá boð um skólavist.

    Þeir umsækjendur sem fá boð um skólavist þurfa að staðfesta hvort þeir hyggist taka því með því að greiða skrásetningargjald fyrir komandi skólaár.

    Úrskurður inntökunefndarinnar er endanlegur og er inntökunefnd ekki skylt að gefa nánari skýringar á úrskurði sínum.

  • Tungumálakunnátta

    Meistaranám í listkennslu er nám sem kennt er á íslensku nema um erlenda gestakennara sé að ræða, þá fer kennsla fram á ensku. Umsækjendur þurfa að vera vel færir um að tjá sig munnlega og skriflega á íslensku í samræmi við kröfur í háskólanámi.

Á döfinni í listkennsludeild