Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuHlutverk höfundarins er í forgrunni í sviðshöfundanámi. Í náminu þróa nemendur með sér listræna sýn og sjálfstæða nálgun á sviðslistir.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Sviðshöfundanám er þriggja ára nám til 180 eininga sem lýkur með BA gráðu í sviðslistum.
Í sviðshöfundanámi er unnið með hlutverk sviðshöfundarins í víðu samhengi út frá sviðsetningu, sköpun, leikstjórn, leikritun, fræðum og flutningi. Nemendur þróa með sér listræna sýn og sjálfstæða nálgun á sviðslistir sem höfundar. Útskrifaðir sviðshöfundar gegna leiðandi hlutverki innan innlendra og alþjóðlegra sviðslista, sem og á mörgum öðrum sviðum; allt frá fjölmiðlum til fræðastarfa, leiklistarkennslu, markaðssetningu, menningarstjórnun og framleiðslu.
Uppbygging náms
Uppbygging námsins er jöfnum höndum fræðileg og verkleg. Námið er vettvangur fyrir tilraunir og rannsóknir innan sviðslista þar sem nemendur takast á við sögu, eðli og hlutverk listformsins í víðum skilningi. Í náminu kynnast nemendur ólíkum aðferðum við merkingarsköpun, uppbyggingu og samsetningu sviðsverka, kanna mörk þeirra og snertifleti við aðrar listgreinar og þróa sína eigin höfundarödd, fagurfræði og aðferðafræði. Í fræðiáföngum öðlast nemendur þekkingu og skilning á sögulegu, samfélagslegu og pólitísku samhengi sviðslista, efla gagnrýna hugsun um fagið og þroska meðvitund um erindi sviðshöfundarins við áhorfendur og samfélagið.
Á fyrsta ári er lagður grunnur að þekkingu og skilningi nemenda og þeir uppgötva ólíka fleti og aðferðir sviðslista í fræðilegri jafnt sem verklegri vinnu, sjálfstætt og í hópum. Á öðru ári er lögð áhersla á tilraunir nemenda, úrvinnslu og leit að nálgun og handverki í skapandi verkefnum og sjálfstæðri vinnu undir handleiðslu. Á þriðja ári námsins er höfuðáhersla lögð á hlutverk höfundarins; nemendur raungera eigin listrænu sýn, höfundarödd og áherslur í sjálfstæðum, skapandi einstaklingsverkefnum.
Á fjórðu og fimmtu önn námsins býðst nemendum að fara í skiptinám til samstarfsskóla Listaháskólans víða um heim, eða í starfsnám til listamanna, hópa og stofnana innanlands eða erlendis.
Nemendur ljúka námi með útskriftarverkefni og lokaritgerð.
Að loknu námi
Útskrifaðir sviðshöfundar gegna leiðandi hlutverki innan innlendra og alþjóðlegra sviðslista, starfa sem sjálfstæðir listamenn eða hjá leikhúsum og menningarstofnunum bæði hérlendis og erlendis, sem og á öðrum, fjölbreyttum sviðum. Útskrifaðir sviðshöfundar eru einnig vel undirbúnir fyrir áframhaldandi nám á meistarastigi.
Til að umsókn sé fullgild þarf að borga umsóknargjald og eftirfarandi gögn* þurfa að berast Listaháskólanum:
*Athugið – Öllum rafrænum gögnum skal skilað sem PDF.
Umsækjendur skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu/portfolio.
Mappan skal innihalda að hámarki fimm sýnishorn, sem eiga að endurspegla umsækjandann, varpa ljósi á áhugasvið og helstu hugðarefni hans. Úr sýnishornum á að vera hægt að lesa listræna hugsun umsækjanda og getu hans til framsetningar á hugmyndum sínum.
Í raun rúmast allt innan möppunnar sem að mati umsækjandans sjálfs getur með einum eða öðrum hætti lýst því sem hann vill koma á framfæri um hæfni sína, bakgrunn, listrænan áhuga og persónuleika. Sem dæmi um innihald möppunar eru: sýnishorn af gjörningum eða atriðum, brot úr sviðsverkum eða stuttmyndum, brot úr skrifuðum texta eftir umsækjanda s.s leikritum eða kvikmyndahandritum, kaflar úr ritgerðum, brot úr ljóðum og sögum eða upptökur með sýnishornum af verkum.
Athugið að ekki er óskað eftir verkum í fullri lengd og umsækjendur eru hvattir til þess að velja fremur styttri hluta af lengri verkum svo inntökunefnd hafi færi á að fara yfir öll gögn í ferilmöppum umsækjenda.
Hægt er að skila möppu/portfolio með þrennum hætti:
Mikilvægt er að umsækjendur fylgist vel með framgangi umsóknar sinnar í gegnum samskiptagátt Uglu. Í gegnum Ugluna fá umsækjendur skilaboð ef einhver fylgiskjöl vantar. Umsóknin er fyrst fullkláruð þegar möppu hefur verið skilað og öll fylgiskjöl í lagi. Með hliðsjón af umsókn og möppu verður völdum umsækjendum boðið að þreyta inntökupróf.
Inntökuferlið skiptist í þessa hluta:
Dagur 1: Fyrsti og annar hluti.
Fyrsti hluti samanstendur af skriflegu verkefni þar sem lögð er áhersla á greiningarhæfni og skapandi úrvinnslu umsækjenda. Umsækjendur horfa á um 1 klukkustundar langt brot úr sviðsverki eða upptöku af sviðsverki og fá í kjölfarið 2 klukkustundir til þess að skrifa texta sem þeir skila til inntökunefndar. Form textans er frjálst.
Annar hluti samanstendur af hópverkefni. Umsækjendur fá send gögn fyrir prufuna og er síðan skipt í hópa og fá 2 klukkustundir til þess að skapa sviðsverk í sameiningu. Verkið skal ekki vera lengra en 10 mínútur að lengd.
Dagur 2 eða 3: Þriðji og fjórði hluti.
Þriðji hluti felur í sér flutning á stuttu, frumsömdu atriði eða gjörningi sem umsækjendur flytja fyrir inntökunefnd. Atriðið skal ekki vera lengra en 5 mínútur að lengd.
Fjórði hluti felur í sér einstaklingsviðtal. Viðtalið hefur þann tilgang að kanna almennan áhuga umsækjanda á tilvonandi námi, afstöðu þeirra, sýn og viðhorf til sviðslista. Spurt er um bakgrunn umsækjenda, áhugasvið, ástríðu og væntingar til sviðslista almennt sem og námsins. Einnig er spurt um hugmyndir að baki ferilmöppu umsækjanda og rætt um upplifun og framlag umsækjandans í inntökuferlinu.
Öllum umsækjendum verður sent skriflegt svar við umsóknum að loknum prufunum.
Í inntökunefnd sitja að jafnaði fagstjóri sviðshöfundabrautar sem er formaður nefndarinnar, kennari við brautina eða deildarforseti, og einn starfandi sviðslistamaður úr faginu. Jafnframt situr inntökurnar fulltrúi nemenda sem áheyrnarfulltrúi.
Inntökunefndin velur nemendur úr hópi umsækjenda sem talið er að hafi forsendur til að stunda nám á sviðshöfundabraut og og sem standast þau skilyrði sem tilgreind eru í reglum Listaháskólans. Inntökunefndin hefur að leiðarljósi að viðkomandi geti sem best nýtt sér það nám sem í boði er. Ekki skal túlka mat nefndarinnar á þann hátt að í því felist dómur um listræna hæfileika umsækjenda almennt. Störf nefndarinnar eru trúnaðarmál og birtir hún ekki umsagnir um einstaka umsóknir. Úrskurður hennar er endanlegur og verður ekki vísað til endurskoðunar annars staðar innan skólans.
Þættir sem inntökunefnd metur eru meðal annars:
Inntökuskilyrði:
Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi. Listnám er tekið til greina þegar umsókn er metin.
Undanþágur:
Listaháskólanum er heimilt að veita inngöngu í skólann umsækjendum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur til bakkalárnáms við skólann. Þó þurfa umsækjendur að hafa lokið eigi færri en 105 einingum úr eldra kerfi framhaldsskólastigsins eða 150 framhaldsskólaeiningum samkvæmt nýja kerfinu.