Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuÍ alþjóðlegu meistaranámi í tónsmíðum fær nemandinn stuðning til að efla listrænt eða fræðilegt starf sitt í umhverfi sem einkennist af skapandi og gagnrýnu hugarfari, faglegri reynslu og fræðilegri þekkingu, og ekki síst hvetjandi námssamfélagi.
Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.
Um námið
Hver nemandi sækir reglulega einkatíma hjá leiðbeinanda í tónsmíðum en jafnframt bera nemendur saman bækur sínar í hóptímum, svokallaðri verkrýni, undir stjórn tónsmíðakennara. Skólinn er í samstarfi við atvinnuhljóðfæraleikara sem halda vinnustofur þar sem verk nemenda eru leikin og rædd. Annar samgangur nemenda er mikill þar sem allir hittast einu sinni í viku ýmist til að kafa ofan í þekkt tónverk, þjálfa og ræða eigin rannsóknaraðferðir eða eiga skipulegt samtal um listræn eða fagleg málefni að eigin vali. Smám saman leiðir þetta til þess að hver nemandi afmarkar sitt rannsóknar- og sköpunarsvið og lýkur náminu með meistaraverkefni sem samsett er úr tónverki og ritgerð. Hlutföllin þar á milli geta verið misjöfn allt eftir því sem hentar hverjum nemanda: a) 20 eininga tónverk og 10 eininga ritgerð, b) 10 eininga tónverk og 20 eininga ritgerð, eða c) lokaverk sem einblínir á verklega þáttinn. Þar vegur tónverkið 26 einingar og er stutt af fjögurra eininga ritsmíð um eigin vinnuferil. Nemendur eiga þess kost að fá lokaverk sitt flutt af Caput á útskriftartónleikum.
Uppbygging náms
Skyduáfangar námsins eru flestir á 1. önn. Þeir eru, auk tónsmíðatímanna, námskeið í hljóðtækni, ýmist hljóðfæraskrift eða raftónlist, námskeið í rannsóknaraðferðum listanna, námskeið í greiningu tónverka og kynning á rannsóknum á íslenskri tónlist. Brautin skipuleggur ýmis valnámskeið, þar má nefna um samband tónlistar og annarra lista, um listræna ögrun, um kvikmyndatónlist, um hljómsveitarskrift og um radd- og kórskrift. Auk þess eru fjölbreyttir áfangar í boði innan deildarinnar, til dæmis þátttaka í tilraunahljómsveit deildarinnar, námskeið um vídeótækni. Á 3. önn býðst nemendum jafnframt sérhæfður stuðningur við eigin rannsóknarverkefni. Deildin ræðst reglulega í alþjóðleg samstarfsverkefni auk þess sem hægt er að sækja um skiptinám í eina önn við einhvern af þrjátíu samstarfsskólum LHÍ.
Að loknu námi
Að loknu námi ætti nemandinn að hafa þann hugmyndafræðilega og tæknilega grunn sem hentar hans tónsköpun. Náminu er einnig ætlað að efla tök hans á tónlist almennt, hvort sem viðfangsefnið er túlkun, rannsókn, umfjöllun og miðlun eða kennsla tónlistar. Það er því vítt starfssvið sem opnast auk þess sem halda má áfram námi á doktorsstigi erlendis.
Upplýsingar um umsóknar- og inntökuferli á alþjóðlegum meistaranámsleiðum eru eingöngu á ensku.
IUA employs a standard electronic application form.
The application process is in two steps, first submit the application and then pay the application fee. Please note: It is possible to save the application while working on it.
Admission Process
An admission committee assesses applications on the grounds of assessment of the submitted material, the applicant’s motivation and aim with the studying at the IAA and the interview(s) with the applicant.
10. febrúar 2025
8. apríl 2025
Maí / júní 2025
Applicants must submit one reference. The reference should not exceed one page. The reference can be submitted in Icelandic or English. Former students of the IAA don’t have to submit a reference.