Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu nemenda
myndlistardeildar og hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskólans sem
verður opnuð laugardaginn 21.apríl n.k. kl. 14.00 í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi, en sýningin er unnin í samvinnu við Listasafn
Reykjavíkur.

Verk nemenda á sýningunni eru afrakstur þriggja ára náms við
Listaháskólann þar sem markmiðið hefur verið að skapa nemendum aðstöðu
til að mennta sig sem listamenn og gera þá reiðubúna til að takast á við
víðtæk viðfangsefni á skapandi og gagnrýninn hátt með forvitni, áræðni
og framsækni að leiðarljósi.

Sýningastjóraspjall verður:

22. apríl kl. 15:00 – myndlistardeild

29. apríl kl. 15:00 – hönnunar- og arkitektúrdeild

Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands verkur alltaf verðskuldaða
athygli og fær gríðalega góða aðsókn. Í fyrra komu 18.000 gestir á þeim
tveim vikum sem sýningin var opin.

Hægt er að panta leiðsögn fyrir hópa í síma 590 1200.

Sýningin stendur til 6. maí og er opin daglega frá 10.00 – 17.00 og á
fimmtudögum frá 10:00 – 20:00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.