Sláðu inn leitarorð
Skammdegistónleikaröð tónlistardeildar LHÍ
10.12.2017 - 14:00 til 10.12.2017 - 15:00
Háteigskirkja
Leikið á víólu og þverflautu:
Katrín Arndísardóttir, Sigrún Mary McCormick og Steina Kristín Ingólfsdóttir leika á víólu og Vilborg Hlöðversdóttir leikur á þverflautu.
Meðleikarar eru Kristján Karl Bragason og Richard Simm.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!
Skammdegistónleikaröð tónlistardeildar er yfirheiti nemendatónleika í lok haustannar. Tónleikaröðin hófst með tónleikum í Hallgrímskirkju liðna helgi þar sem kór og hljóðfæranemendur skólans komu fram.
Nú hafa tekið við einleiks- og kammertónleikar nemenda og standa þeir samfellt yfir á tímabilinu 25.nóvember til 11.desember.