Fatahönnun
Hagnýtir eiginleikar fatahönnunar hafa víðtæk áhrif á umhverfi og samfélag og koma við sögu oft á dag í lífi sérhverrar manneskju.
Í náminu læra nemendur grunnþætti fatahönnunar. Unnið er með hönnunarferlið sem felur í sér samfélagslega og umhverfislega þætti, hugmyndavinnu, rannsókn, tæknilegar útfærslur á fatnaði eins og sníðagerð, nýsköpun í textíl, fatasaum og fjölbreyttar leiðir til miðlunar.
Meðal verkefna sem nemendur vinna má nefna Misbrigði, þar sem fatnaður er unninn úr ónothæfum textíl í samvinnu við Rauða krossinn, samkeppni á vegum Cristobel Balenciaga safnsins á Spáni og eigin línu í lokaverkefni til BA gráðu sem sýnd á stórri tískusýningu í lok námsins.
Að loknu BA námi í fatahönnun við LHÍ hafa nemendur unnið sjálfstætt að fatahönnun undir eigin merkjum eða hjá stærri fyrirtækjum hérlendis og erlendis. Margir fara í framhaldsnám við skóla erlendis þar sem þeir hafa tækifæri til þróa áhugasvið sitt innan fatahönnunar.
Við Listaháskóla Íslands miðar nám í fatahönnun að því að efla fagið, jafnhliða samfélagslegri og umhverfisleg vitund. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér fagmennsku og gæði í hönnun, læri að nýta tæknimöguleika, handverk og þjálfa gagnrýna, skapandi hugsun sem er nauðsynleg til að geta starfað í síbreytilegu umhverfi fatahönnunar og orðið leiðandi hönnuður í framtíðinni.