Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Píanónámskeið í ágúst / Piano course in August

  • 22.apríl 2024

Skrá á námskeið
Edda Erlendsdóttir og Peter Máté halda námskeið í píanóleik í ágúst 2024.

Námskeiðið er byggt upp sem hefðbundið klassískt hljóðfæranám í opnum einkatímum og hóptímum. Námskeiðið er ætlað píanónemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi. Lögð er áhersla á tækniskólun, góðan tónlistarflutning, ásamt þekkingu á mismunandi tónlistarstílum. Nemendur þjálfast í að koma fram, flytja verk fyrir framan hóp og taka tilsögn kennara. Nemendum gefst kostur á því að taka þátt í tónleikum í lok námskeiðs.

Hæfniviðmið

Í lok námskeiðis munu nemendur hafa aukinn skilning á eftirfarandi:

  • Tónlistarflutning, þekking og innsæi í mismunandi tónlistarstíla
  • Tækniþjálfun í píanóleik
  • Þjálfun í að koma fram og flytja verk fyrir framan hóp

Kennarar: Edda Erlendsdóttir og Peter Máté píanóleikarar
Kennslutungumál: Íslenska og enska
Staðsetning: Húsnæði LHÍ í Skipholt 31, Dynjandi og Flyglasalur
Kennslutímabil: 6.-16. ágúst, tónleikar síðasta daginn
Kennsludagar: Kennt er alla daga einnig helgardaga, kennslutími er frá kl. 10:00-17:30
Kennslufyrirkomulag: 3 einkatímar, hóptímar og lokatónleikar, tímar eru ákveðnir í samráði við nemendur
Námsmat: Virkni í tímum og tónlistarflutningur. Virkir þátttakendur fá skriflega umsögn leiðbeinenda.
Fyrir hverja er námskeiðið: Píanónemendur á háskóla-, framhalds- og miðstigi og aðra áhugasama hlustendur.
Einingar: 2 ECTS, einnig er hægt að taka námskeiðið án eininga ef nemendur hafa ekki lokið stúdentsprófi.
Forkröfur: Námskeiðið er ætlað nemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi í píanóleik. Vinsamlegast tilgreinið stig, kennara og/ tónlistarskóla í umsókn.
Verð: 55.000 kr.
Staðsetning: Skipholti 31, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar: Peter Máté, fagstjóri LHÍ, peter@lhi.is

Opið er fyrir umsóknir á ágústnámskeið til 28. júní 2024.

Register

Piano Course with Edda Erlendsdóttir and Peter Máté will be held summer 2024.
The course is open for piano students at advanced, third and secondary level.

Instructors: Edda Erlendsdóttir and Peter Máté
Language: Icelandic and English
Location: Skipholt 31, 105 Reykjavík
Dates: 6.-16. August, concert the last day
Time: 10:00-17:30, please note also classes during the weekend
Format: Group and private lessons
Evaluation: Participation and performance, students may participate in a concert at the end of course
ECTS: 2 ECTS, students may also attend the course without credits
Teaching language: Icelandic and English
Preliminary requirement: For students at advanced, third and secondary level. Please write level, teacher and/or school in your application.
Fee: 55.000 ISK.
Further information: Peter Máté, Professer and programme director LHÍ, peter@lhi.is

The August course is open for application until 28 June 2024.