Sóley Björt Guðmundsdóttir
Staða:
Forstöðumaður háskólaskrifstofu
Sérsvið:
Forstöðumaður háskólaskrifstofu og mannauðs- og gæðastjóri
Sóley Björt er forstöðumaður háskólaskrifstofu og mannauðs- og gæðastjóri.
Starfið felur í sér ábyrgð á starfsemi, rekstri og starfsmannahaldi háskólaskrifstofu auk stjórnunar á mannauðs- og gæðamálum þvert á Listaháskólann.
Sóley hefur starfað hjá Listaháskólanum frá árinu 2007 sem deildarfulltrúi tónlistardeildar og sviðslistadeildar, verkefna- og mannauðsstjóri á háskólaskrifstofu og frá apríl 2020 í núverandi stöðu.
Hún hefur B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands, starfsréttindi til kennslu í grunnskólum og MS gráðu í mannauðsstjórnun.