Fornafn: 
Kristinn Sigmundsson

Kristinn Sigmundsson (f. 1951) nam söng hjá Guðmundi Jónssyni við Söngskólann í Reykjavík, hjá Helene Karusso, Christian Möller og Wolfgang Gabriel við Universität für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg og hjá John Bullock í Washington. Áður en hann sneri sér að söngnámi hafði hann lokið BS-gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands.

Hann hefur komið fram í flestum stærstu óperu- og tónlistarhúsum heims, þar á meðal Metropolitan-óperunni í New York, Staatsoper í Vínarborg, La Scala í Mílanó, Covent Garden í London, Opéra National í París, Deutsche Oper og Staatsoper í Berlín, Royal Albert Hall í London og Concertgebouw í Amsterdam. Hann hefur auk þess tekið þátt í hljóðritunum með erlendum hljómsveitum; Töfraflautunni og Don Giovanni með Hljómsveit Drottningholm-óperunnar, Mattheusarpassíu og Jóhannesarpassíu J. S Bachs með Orchestra of the Eighteenth Century og Rakaranum í Sevilla með Útvarpshljómsveitinni í München. Kristinn er að auki virtur konsert- og ljóðasöngvari.

Meðal viðurkenninga sem Kristinn hefur hlotið eru Philadelphia Opera Prize og Opernwelt-verðlaunin í Belvedere óperusöngvarakeppninni í Vínarborg árið 1983, Stämgaffeln – Det klassiska svenska fonogrampriset 1991, Íslensku tónlistarverðlaunin 1995, 2010 og 2011 og Útflutningsverðlaun Forseta Íslands 2011. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1995 og var útnefndur bæjarlistamaður Kópavogs árið 2005þ

Kristinn hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2016 fyrir framlag sitt til íslensks tónlistarlífs. Kristinn er gestaprófessor við LHÍ.

 

Deild á starfsmannasíðu: