Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuRannsóknarverkefnið Building Bridges sem hýst er við Listaháskóla Íslands, í samstarfi við Háskólann á Bifröst og York St. John University í Bretlandi, og styrkt af Rannsóknasjóði leitar að meistaranema til þess að vinna með rannsóknarhópnum að meistaraverkefni um samfélagstónlist á Íslandi og/eða Kordu Samfóníu. Verkefnið skal vera 30-60 ECTS og vera lokið í maí 2026. Nemandinn fær greiddan styrk að upphæð 1.000.000 kr. Nemandinn getur komið úr hvaða háskóla á Íslandi.
Nánar um Building Bridges verkefnið:
Til eru margvísleg samfélagsmiðuð tónlistarverkefni þar sem unnið er með fjölbreyttum hópum og samfélögum, t.d. einstaklingum í fangelsum, skjólstæðingum heilbrigðisstofnana og einstaklingum á ólíkum aldri, með fjölbreytta kunnáttu og bakgrunn. Þessi verkefni endurspegla þá hugmyndafræði að tónlist og tónlistariðkun geti haft jákvæð áhrif á fólk og jafnvel breytt lífi þess til hins betra. Meginmarkmið þessa verkefnis er að rannsaka MetamorPhonics (MP) sem er dæmi um samfélagsmiðað fyrirtæki sem sérhæfir sig í að leiða samfélagshljómsveitir.
Tilgangurinn er að skilja margvíslega þætti MP, meðal annars með því að skoða:
bakgrunn og áhugahvöt þátttakenda
hugmyndafræði og leiðarljós MP
samanburð við önnur samfélagsmiðuð tónlistarverkefni
Eftirfarandi þættir eru til rannsóknar:
kennslufræðileg nálgun MP
hvernig listræn stjórnun og ákvarðanataka fer fram
hvernig bakgrunnur þátttakenda hefur áhrif á tónlistarlega nálgun
hvaða áhrif þátttaka í MP verkefnum hefur
hvort þátttaka hefur varanleg áhrif á hljómsveitarmeðlimi
hvort þáttaka hafi áhrif á lífið utan verkefnisins
Í verkefninu er einnig lögð áhersla á að þjálfa tónlistarleiðtoga til rannsókna á eigin starfi, þróa rannsóknaraðferðir sem snúa að samfélagsmiðuðum tónlistarverkefnum, og tryggja fjölbreyttar miðlunarleiðir á rannsóknarniðurstöðum þar sem rannsakendur, hag- og fagaðilar fá aðgengi að niðurstöðunum.
Þáttur meistaraverkefnis
Þáttur meistararannsóknar felst í að rannsaka tiltekna þætti í ofangreindu samhengi með áherslu á íslenskt samhengi. Einnig gefst kostur á að þróa og reyna þá aðferðafræði sem nýtt er í verkefninu sem samanstendur af eigindlegum aðferðum, listrannsóknum og hvernig nýta megi aðferðir heimildamyndagerðar við eigindleg viðtöl og miðlun.
Ef vel tekst til gæti opnast tækifæri eftir þetta verkefni að vinna í tvo mánuði til viðbótar að skýrslugerð við verkefnið.
Frekari upplýsingar veitir Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands, thorbjorghall@lhi.is
Í umsókn skal koma fram nafn umsækjenda, háskóli, námsleið, fyrirhugaður einingafjöldi meistaraverkefnis. Þá skal fylgja kynningarbréf þar sem fram kemur lýsing á því sem umsækjandi hefur áhuga á að vinna að. Með umsókninni skal fylgja ferilskrá, staðfesting á skólavist og yfirlit yfir námskeið og einkunnir umsækjanda. Umsóknum skal skila á íslensku eða ensku.
Umsóknir skulu berast fyrir 1. maí 2025 á thorbjorghall@lhi.is