Hvað ákvarðar það hvort flík sé kvenleg eða karlmannleg? Konur geta gengið í nær öllum flíkum ætluðum karlkyninu án þess að það veki sérstaka athygli. Sama á ekki við um karlmenn. Táknfræði tískunnar hefur þar áhrif. Form, litir og áferð í bland við hefðir og gildi hafa áhrif á það hvort við teljum flík vera fyrir konu eða karl. Hægt er að ráðskast með þessi tákn til að ná fram ákveðnum áhrifum og stilla flíkinni þá upp sem karlmannlegri eða kvenlegri eða einhversstaðar mitt á milli. Í línunni er leikið með þessi mörk og svæðið á milli hins karllæga og hins kvenlæga.